Re: [Folda] sameining nemendafélaga
vaka antonsdóttir
vaka.antonsdottir at gmail.com
Thu Apr 3 17:39:30 GMT 2008
Hæ krakkar,
Tetta kemur mer heldur ekki rass i bala vid, tar sem eg er ekkert i
nami, heldur nærist vel i andfullum kjafti norska oliuaudsins. En hef
lika skodun a malinu, eins og Rannveig. Hvad meinid tid, eru
bingo-kvøld og visindaferdir ekki ha-visindarlegir atburdir? Eda
hvad:)
Gaman ad fylgjast med hvad er ad gerast i Øskju.
Kvedja ur nafla alheimsins, Harstad
Vaka
Þann 3.4.2008 skrifaði Rannveig Guicharnaud <rannveig at lbhi.is>:
>
>
>
>
>
> Halló líka,
>
>
>
>
>
> Þetta mál kemur mér í raun ekki rass í bala við (þar sem ég er í doktorsnámi
> í Skotlandi (í jarðvísindum þó) en ekki við HÍ) en fyrst ég er nú á þessum
> ágæta póstlista og hef skoðanir á hinu og þessu verð ég bara að segja að ég
> er algjörlega sammála Ívari fyrrverandi bekkjarfélaga mínum og Birni Odds.
>
>
>
> Hagsmunir grunnnema og framhaldsnema eru bara alls ekki þeir sömu og félagið
> á að vera á faglegri nótunum. Hagmunir framhaldsnema snúast m.a. fjármögnum
> rannsókna, aðgang að tækjum, öryggisbúnaði inn á rannskónastofum og svo
> mætti lengi telja eins og Ívar bendir réttilega á. Þessir þættir eru bara
> alls ekki það sem grunnnemar glíma við. Það að drekka saman bjór er gaman
> og oft á tíðum nauðsynleg iðja en á ekki að þurfa að gerast undir merkjum
> "Foldu".
>
>
>
> Bless í bili
>
>
>
> Rannveig
>
>
> ________________________________
> From: folda-bounces at listar.hi.is on behalf of Ívar Örn Benediktsson
> Sent: fim. 3.4.2008 17:06
> To: 'Björn Oddsson'; 'Helgi Arnar Alfreðsson'
> Cc: folda at hi.is
> Subject: RE: [Folda] sameining nemendafélaga
>
>
>
>
> Halló,
>
> Ég vil byrja á því að lýsa yfir ánægju með þetta fyrsta framtak nýrrar
> stjórnar.
>
> Ég vil hins vegar taka undir með Birni Odds! Ég er þeirrar skoðunar að ekki
> eigi að sameina félögin, enda eru hagsmunir þeirra mjög mismunandi. Folda er
> og á áfram að vera mun faglegra félag heldur en Fjallið, rétt eins og Björn
> bendir á. Hagsmunir okkar í Foldu varða miklu meira faglega þætti heldur en
> hagsmundir nemenda í grunnnámi (með fullri virðingu fyrir þeim). Má þar
> nefna kjaramál, aðstöðumál, öryggismál, aðgang að rannsóknartækjum og
> -búnaði, ýmis konar mál er varða framvindu í framhaldsnámi, fjármögnun
> framhaldsnáms, fjármögnun rannsókna, kennslumál og margt, margt fleira.
> Þetta eru allt önnur mál en grunnnemendur glíma við og allt aðrir hagsmunir
> sem þarf að gæta.
>
> Frekara samstarf félaganna er aftur á móti hið besta mál, og sjálfsagt mál
> að sameina af og til viðburði félaganna til að efla andann og tengslin.
>
> Kveðja, Ívar Örn
>
> -----Original Message-----
> From: folda-bounces at listar.hi.is
> [mailto:folda-bounces at listar.hi.is] On
> Behalf Of Björn Oddsson
> Sent: Thursday, April 03, 2008 4:49 PM
> To: Helgi Arnar Alfreðsson
> Cc: folda at hi.is
> Subject: [Folda] sameining nemendafélaga
>
> Sæl
>
> Þar sem ég get ekki þátt í bjórdrykkjunni góðu, þá vil ég leggjast
> algjörlega gegn því að nemendafélög framhaldsnema og grunnnema verði sett
> undir einn hatt.
>
> Þau starfa algjörlega að mismunandi markmiðum og í raun afskaplega fá
> markmið sem félögin geta stefnt að. Folda er og á að vera mun faglegra
> nemendafélag heldur en fjallið og aðalmarkmið félagsins var að sameina
> framhaldsnema í jarðvísindum sem sitja víða um stofnanir á Íslandi og
> erlendis. Það hefur ekki alveg virkað sem skyldi og legg ég til að ný
> stjórn Foldu leggi sig frekar fram í þeim málum, heldur en að gera félagið
> enn tengdara þeim sem stunda nám í Öskju og hafa áhuga á að drekka bjór.
>
> Hins vegar er sjálfsagt að félögin starfi saman og bakki hvort annað upp þar
> sem á við.
>
> kv.
>
> Björn Oddsson
>
>
> >
> > Komi þið sæl, [English below]
> >
> > Ný stjórn Foldu hefur tekið við störfum og mun fyrsta embættisverk
> > hennar vera að halda partí n.k. föstudag. Folda mun bjóða nemendum í
> > grunnnámi að vera með og halda fyrir þá smá kynningu á störfum
> > nokkurra framhaldsnema hér við stofnunina ásamt því að kynna stofnuna
> sjálfa.
> > Tilgangurinn að efla tengsl og samvinnu jarðvísindanema á öllum stigum
> > námsins. Einnig að hvetja nemendur í grunnnámi til að taka þátt í
> > félagsstarfi og atburðum á vegum Foldu sem og ráðstefnum og öðru sem
> > tengist jarðvísindum. Boðið verður upp á fljótandi veitingar ásamt
> > öðrum veitingum sem eru í boði jarðfræðiskorar. Mikilvægt er að sem
> > flestir mæti til að tilgangi samkomunar sé náð.
> >
> > Ef svo ólíklega vill til að fríu veitingarnar klárist mun bjór verða
> > seldur á mjög hagstæðu verði.
> >
> > Mæting er í Öskju kl: 20.00 á föstudaginn.
> >
> > Kveðja,
> > Stjórn Foldu.
> >
> > P.s Einnig verða óformlegar umræður yfir bjórdrykkju hvort eigi að
> > endurskoða fyrirkomulag núverandi nemendafélaga og stofna nýtt félag
> > stúdenta undir hinni nýju Jarðvísindaskor. Þar sem jarðvísindanemendur
> > á öllum stigum námsins ásamt stúdentum í námsbrautinni „Jarðvísindi
> > fyrir erlenda stúdenta" munu standa að.
> >
> > --------
> >
> > Hello everyone,
> >
> > The new administration of Folda has taken office and the first
> > assignment is to throw a party next Friday. Folda will invite the
> > undergraduate students in geology to join us. The idea is to introduce
> > them to what projects a few of us are working on and give them a short
> > presentation of the Institution of Earth Sciences. The goal is to
> > extend fellowship and collaboration between us in earth sciences and
> > also to encourage them to participate in Folda's events. Folda will
> > offer free beer and The Department of Earth Sciences will offer some light
> snacks.
> >
> > If the free beer will dry up, you can buy some more offered in a good
> > price.
> >
> > The meeting will start at 20:00 in Askja next Friday.
> >
> > Regards,
> > The Board of Folda.
> >
> > P.s. Some informal discussions will be held during the beer drinking
> > about the merge of Folda and undergraduate geosciences students to
> > form a new student association under the new Department of Earth
> > Science, with participation of the "Earth science for foreign students"
> program.
> >
> >
> > _______________________________________________
> > Folda mailing list
> > Folda at listar.hi.is
> > http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
> >
>
>
> --
> Með kveðju,
>
> Björn Oddsson
> Physikalisch Vulkanologisches Labor
> Institut für Geologie
> Pleicherwall 1
> D-97070 Würzburg
> Germany
>
> Sími:00 354 869 3432
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
More information about the Folda
mailing list