[Folda] Tillögur Raunveru um breytt skipulag missera í raunvísindadeild
Hrafnhildur Hannesdóttir
hrafnha at hi.is
Mon Nov 5 11:47:34 GMT 2007
Líst mjög vel á þessa hugmynd og vel unnið plagg.
Ég rak augun í að talin eru upp sumarnámskeið í t.d. ferðamálafræði og
landfræði; í ljósi skiptingar jarð- og landfræðiskorar og nýrrar
jarðvísindaskorar; verða þá ferðamálafræði og mannvistarlandfræði hluti
af þessum nýja Raunvísinda- og verkfræðiskóla?
kveðja,
Hrafnhildur
Sverrir Aðalsteinn Jónsson wrote:
> Sæll Ívar,
>
> mér líst bara vel á þessa greinargerð og tel að í henni komi fram
> flestar þær röksemdir sem mér koma til hugar.
>
> Á sem sagt að sameina raunvísindadeild við verkfræði? Víst svo er,
> hvað finnst þeim, verkfræðinemum, um þessa breytingu og væri ekki
> sterkara að hafa þá með í ályktun sem þessari?
>
> Kveðja Sverrir
>
>
> On 5.11.2007, at 09:42, Ívar Örn Benediktsson wrote:
>
>> Kæru félagar í Foldu
>>
>> Raunvera (hagsmunafélag allra nemenda í raunvísindadeild) vinnur að
>> tillögum um breytingar á misseraskipan innan raunvísindadeildar (sjá
>> viðhengi). Á síðasta miðstjórnarfundi Raunveru var því beint til
>> formanna nemendafélaga í raunvísindadeild að þeir myndu kynna
>> tillögur félagsins fyrir nemendum til að fá fram skoðun þeirra á
>> málinu. Því sendi ég þetta plagg í þeim tilgangi og í þeirri von um
>> að fá einhver viðbrögð við tillögunum. Vinsamlegast kíkið yfir
>> viðhengið og sendið mér svar með athugasemdum og hvort þið eruð
>> fylgjandi tillögunum eða ekki. Þeir sem vilja geta gert "reply all"
>> og óskað eftir umræðum um málið.
>>
>> Að teknu tilliti til viðbragða nemenda í raunvísindadeild, mun
>> Raunvera ákveða hvort farið verður með málið lengra og tillögurnar
>> lagðar fyrir deildina.
>>
>> Kveðja,
>> Ívar Örn formaður Foldu
>>
>> *______________________________________*
>> *Ívar Örn Benediktsson, Cand. Scient. (MSc)*
>> PhD student - Glacial geology and geomorphology
>> Institute of Earth Sciences, University of Iceland
>> Askja, Sturlugata 7, IS-101 Reykjavík
>> Phone: (+354) 525 4305
>> Mobile: (+354) 861 6224
>> Personal homepage: www.hi.is/~iob2/ <http://www.hi.is/%7Eiob2/>
>>
>> <RaunNam_tillogur_IOB.doc>
>> _______________________________________________
>> Folda mailing list
>> Folda at listar.hi.is <mailto:Folda at listar.hi.is>
>> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
> ------------------------------------------------------------------------
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
More information about the Folda
mailing list