Re: [Folda] Tillögur Raunveru um breytt skipulag missera í raunvísindadeild

Sverrir Aðalsteinn Jónsson saj7 at hi.is
Mon Nov 5 11:10:59 GMT 2007


Sæll Ívar,

mér líst bara vel á þessa greinargerð og tel að í henni komi fram  
flestar þær röksemdir sem mér koma til hugar.

Á sem sagt að sameina raunvísindadeild við verkfræði? Víst svo er,  
hvað finnst þeim, verkfræðinemum, um þessa breytingu og væri ekki  
sterkara að hafa þá með í ályktun sem þessari?

Kveðja Sverrir


On 5.11.2007, at 09:42, Ívar Örn Benediktsson wrote:

> Kæru félagar í Foldu
>
> Raunvera (hagsmunafélag allra nemenda í raunvísindadeild) vinnur að  
> tillögum um breytingar á misseraskipan innan raunvísindadeildar  
> (sjá viðhengi). Á síðasta miðstjórnarfundi Raunveru var því beint  
> til formanna nemendafélaga í raunvísindadeild að þeir myndu kynna  
> tillögur félagsins fyrir nemendum til að fá fram skoðun þeirra á  
> málinu. Því sendi ég þetta plagg í þeim tilgangi og í þeirri von um  
> að fá einhver viðbrögð við tillögunum. Vinsamlegast kíkið yfir  
> viðhengið og sendið mér svar með athugasemdum og hvort þið eruð  
> fylgjandi tillögunum eða ekki. Þeir sem vilja geta gert "reply all"  
> og óskað eftir umræðum um málið.
>
> Að teknu tilliti til viðbragða nemenda í raunvísindadeild, mun  
> Raunvera ákveða hvort farið verður með málið lengra og tillögurnar  
> lagðar fyrir deildina.
>
> Kveðja,
> Ívar Örn formaður Foldu
>
> ______________________________________
> Ívar Örn Benediktsson, Cand. Scient. (MSc)
> PhD student - Glacial geology and geomorphology
> Institute of Earth Sciences, University of Iceland
> Askja, Sturlugata 7, IS-101 Reykjavík
> Phone: (+354) 525 4305
> Mobile: (+354) 861 6224
> Personal homepage: www.hi.is/~iob2/
>
> <RaunNam_tillogur_IOB.doc>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20071105/161e5b2b/attachment.html


More information about the Folda mailing list