[Folda] Grillið
Ingibjörg Snædal Guðmundsdóttir
isg1 at hi.is
Thu May 10 14:56:03 GMT 2007
Halló!
Nú er sumar-grillið alveg að fara að bresta á. Til þess að allir fái
nóg að borða og drekka er mikilvægt að þeir sem ætla að koma láti mig
vita. Mætingin er nú þegar orðin töluvert betri en á árshátíðina- það
hafa 7 manns skráð sig!
Þið hin hafið út daginn til að gera þetta upp við ykkur!
Bestu kveðjur,
Ingibjörg
________________________________________________________________________
__
Til upprifjunar:
Kæru félagar!
Föstudaginn 11. maí munum við, Folda og Felix, standa fyrir
grillpartýi hér í Öskju. Herlegheitin byrja kl 17 og standa þangað
til að Ívar er amk búinn að taka nokkur lög á gítarinn.
Boðið verður upp á hamborgara og drykki. Fólki er einnig frjálst að
koma með sína eigin máltíð á grillið og/eða drykki. Kostnaði verður
stillt í hóf (um 1000 kr fyrir allt, minna ef fólk er að hluta til
með eigin veitingar) og mun koma betur í ljós þegar nær dregur.
Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda póst á Ingibjörgu
<isg1 at hi.is> - vinsamlegast takið fram hvort þið ætlið að vera með í
mat/drykk eða ekki.
Bestu kveðjur f.h. skemmtinefndar,
Ingibjörg
More information about the Folda
mailing list