[Folda] Aðalfundur í dag kl. 16 / Annual meeting today at 16
Ívar Örn Benediktsson
iob2 at hi.is
Fri Feb 16 11:01:08 GMT 2007
Kæru félagar (English below),
Stjórn Foldu minnir á aðalfund félagsins í dag kl. 16. Fundurinn fer fram í
fundarsal Jarðvísindastofnunar, 3. hæð Öskju. Við hvetjum alla til að mæta
og taka þátt. Reynt verður að hafa þetta stutt og laggott. Bjór, gos og
snakk á boðstólnum!
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnar fyrir næsta starfsár.
6. Nýkjörin stjórn tekur við völdum.
7. Kosning/skipan skorarfulltrúa til eins árs.
8. Kosning í skemmti- og ferðanefnd.
9. Samkeppni um merki félagsins.
10. Umræður um framtíð félagsins í ljósi fyrirhugaðrar skiptingar Jarð- og
landfræðiskorar í Jarðvísindaskor annars vegar og Land- og
ferðamálafræðiskor hins vegar.
11. Önnur mál.
12. Spjall og skemmtilegheit!
Sem fyrr vill stjórnin vekja sérstaka athygli á eftirtöldum málum:
Stjórnarkjör: Öllum er frjálst að bjóða sig fram á fundinum til setu í
stjórn félagsins. Ívar, Sæmundur og Friðgeir gefa kost á sér til
áframhaldandi setu í stjórninni, aðrir stjórnarmeðlimir ekki. Ívar gefur
jafnframt áfram kost á sér sem fulltrúi félagsins í skor. Ljóst er að kjósa
þarf tvo til viðbótar í stjórn, auk tveggja varamanna.
Framtíð félagsins: Eins og flestir ættu að vita eru í félaginu
framhaldsnemar í jarðfræði, landfræði og ferðamálafræði við jarð- og
landfræðiskor, ásamt framhaldsnemum í jarðeðlisfræði við eðlisfræðiskor. Nú
liggur fyrir að jarð- og landfræðiskor verði skipt upp í tvær skorir (tekur
formlega gildi í síðasta lagi í sumar). Annars vegar Jarðvísindaskor, þar
sem jarðfræði, jarðeðlisfræði og haffræði sameinast. Hins vegar Land- og
ferðamálafræðiskor fyrir landfræði og ferðamálafræði. Stjórn Foldu hefur
áhuga á að efna til umræðna á aðalfundinum um framtíð félagsins í ljósi
fyrirhugaðra breytinga. Á félagið að starfa áfram í núverandi mynd og vera
þá félag framhaldsnema í tveimur mismunandi skorum, eða á félagið að fylgja
skorarlínum og skiptast þ.a.l. upp í tvennt? Stjórn Foldu biður félagsmenn,
hvaða grein sem þeir tilheyra, að velta þessum málum fyrir sér og taka þátt
í umræðum á fundinum.
Fyrirlestraröð: Núverandi formaður hefur séð um fyrirlestraröð Foldu frá því
haustið 2005, en hefur ekki í hyggju að halda því áfram. Því er óskað eftir
öðrum félagsmanni til að taka við umsjón fyrirlestraraðarinnar. Þeir sem
hafa áhuga eru beðnir um að hafa samband við formann eða gefa sig fram á
aðalfundinum.
Lagabreytingar: Runnin er út frestur til að leggja fram tillögur að
lagabreytingum. Stjórn félagsins lagði fram tillögur að breytingum sem
sendar voru Foldu-liðum í tölvupósti síðastliðinn þriðjudag. Gott væri ef
fólk gæti kynnt sér þær tillögur fyrir fundinn svo afgreiðsla laganna taki
sem skemmstan tíma.
Sjáumst kl. 16 í dag.
Stjórn Foldu.
-----------------------------------------
Dear all,
Folda's annual meeting will be held today at 16 in the meeting-room of Earth
Science Institute, 3rd floor og Askja. The formal things of the meeting will
more or less be in Icelandic but the drinks and snacks are international!!
The program of the meeting is as follows:
1. Board's report
2. Cashier's report
3. Discussions about 1 and 2
4. Changes of Folda's law
5. Board election
6. The new board takes over
7. Election of department representative
8. Election of social and travel committee
9. Competition for Folda's logo
10. Discussions about Folda's future as regards comming division of the
Department of geology and geography into Department of Earth Sciences
(geology, geophysics and oceanography) on one hand, and Department of
geography and tourism studies, on the other.
11. Other issues
12. Chat and cheers
The board wants to emphasise the following:
Election: Every Folda-member is welcome to offer oneself as a candidate for
the board, department representative or social and travel committee. Those
who are interested please step forward at the meeting.
Folda's future: Discussions about Folda's future as regards comming division
of Department of geology and geography into Department of Earth Sciences
(with geology, geophysics and oceanography) on one hand, and Department of
geography and tourism studies, on the other. Do we want to keep Folda
unchanged and thereby be a union of graduate students in two departments, or
do we want to follow the line of departments and split the union in two new
unions?
Seminar series: Ívar is not going to take care of the seminar series
anymore. Is anyone willing to take over?
See you at the meeting!
The Folda board.
______________________________________
Ívar Örn Benediktsson, Cand. Scient.
PhD student - Glacial geology and geomorphology
Institute of Earth Sciences, University of Iceland
Askja, Sturlugata 7, IS-101 Reykjavík
Phone: (+354) 525 4305
Mobile: (+354) 861 6224
Personal homepage: <http://www.hi.is/~iob2/> www.hi.is/~iob2/
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20070216/86e78c1e/attachment.html
More information about the Folda
mailing list