[Arminius] Félagslífið í nóvember - óperan og Nikulausfei er

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Sat Oct 30 19:39:07 BST 2004


Kæru þýzkunemar,

Nú fer að nálgast próf og því fer að hægjast á félagslífinu. Þó verður
auðvitað eitthvað um að vera fyrir félagsmenn í nóvember. Hæst ber að
föstudaginn 26. nóvember verður haldið glæsilegt Nikulausfeier. Verð fyrir
félagsmenn í Arminiusi er krónur 700 en 1500 fyrir aðra. Séu félagsmenn
Arminiusar jafnframt í Námunni, námsmannaþjónustu Landsbankans að þá
niðurgreiðir Landsbankinn miðann um krónur 500, svo að kostnaður
félagsmanna sem jafnframt eru í Námunni er einungis krónur 200. Nánari
upplýsingar um Nikulausfeier verða veittar þegar nær dregur.

Félagsmenn þurfa þó ekki að örvænta að ekkert annað verði um að vera í
nóvember. Ef næg þátttaka fæst er uppi sú hugmynd að fara saman á óperuna 
Sweeney Todd sunnudaginn 14. nóvember. Á sunnudögum fá háskólanemar 2/1 í
íslenzku óperuna en ofan á það myndi Arminius niðurgreiða miðann um krónur
1000. Einungis verða niðurgreiddir miðar fyrir 10 nemendur svo að það
borgar sig að skrá sig strax.  Félagsmenn í Arminiusi væru þá að borga
krónur 1250 fyrir miðann í staðinn fyrir 4500 krónur!

Athugið að auðvitað er þetta sett fram um að nægilega margir miðar fáist á
sýninguna. En skráið ykkur samt endilega svo að við vitum hvort að það er
eitthvað vit í því að stefna á þetta.

Ef þið hafið einhverjar hugmyndir um eitthvað sem gaman væri að gera að
látið þá endilega stjórnina vita.

f.h. stjórnar Arminiusar,
Palli


More information about the Arminius mailing list