[Arminius] Til nemendafélaga HÍ

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Fri Oct 29 21:20:57 BST 2004


Kæru vinir!

Stúdentaráð fer þess á leit við ykkur, forsvarsmenn nemendafélaganna í
Háskóla Íslands, að leggja okkur lið í baráttunni fyrir lengdum
opnunartíma Þjóðarbókhlöðunnar.

Því biðjum við ykkur um að birta neðangreinda slóð og tilkynningu á
heimasíðum ykkar, um er að ræða undirskriftasöfnun. (sjá neðar).

Kveðja,
Jarþrúður og Erla


Kæri stúdent!

Næstkomandi fimmtudag dregur til tíðinda í máli Þjóðarbókhlöðunnar:

Á næsta Háskólaráðsfundi leggja stúdentar fram tillögu um að lengja eigi
opnunartíma Þjóðarbókhlöðunnar aftur. Þinn stuðningur er mikilvægur og því
hefur Stúdentaráð hafið undirskriftasöfnun á netinu á slóðinni:

http://www.student.is/bokhlada/

Nú er tækifærið til að láta til sín taka. Undirskriftalistinn verður
lagður fram á fundinum máli okkar til stuðnings.

Stöndum saman og tryggjum stúdentum aðgang að Háskólabókasafninu!




_________________________________________________
Stúdentaráð Háskóla Íslands
Stúdentaheimilinu við Hringbraut
101 Reykjavík
http://www.student.is
Sími: 570-0850
Netfang: shi at hi.is


More information about the Arminius mailing list