[Arminius] Bjórsmökkun Germaniu á laugardaginn!!

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Wed Oct 27 17:48:38 BST 2004


Kæri félagi í Arminiusi/Germaniu

Nokkuð er síðan Germania bauð upp á vel heppnaða vínsmökkun þar sem
fjallað var um hinar ýmsu þýsku víntegundir. Þó svo að þýskur bjór sé að
vonum fyrirferðarmikill á útsölustöðum ÁTVR hefur félagið enn ekki boðið
upp á bjórsmökkun svo vitað sé.

Úr því verður bætt þann 30. október næstkomandi þegar Þorri Hringsson mun
smakka á nokkrum þýskum bjórtegundum með félögum Germaniu og gestum
þeirra. Þorri hefur getið sér gott orð fyrir faglega umfjöllun um léttvín
og verður án efa áhugavert að heyra hann tala um bjór.

Bjórsmökkunin fer fram laugardaginn 30. október í húsakynnum Goethe
Zentrum við Laugaveg 18 á 2. hæð og hefst hún kl. 20:00. Nánari
upplýsingar er hægt að fá í síma 864 3448 og skráning fer fram á vef
félagsins http://www.germania.is. Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir félaga í
Arminiusi, 1.000 fyrir félagsmenn Germaniu og gesti þeirra, en kr. 1.500
fyrir aðra.

Með bestu kveðjum, stjórn Germaniu

Félagsmenn í Arminiusi látið ekki þetta boð ganga ykkur úr greipum!!
Skráið ykkur strax!

Kv.
Stjórn Arminiusar



More information about the Arminius mailing list