[Arminius] Félagsskírteini og vísindaferð!!

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Tue Oct 19 23:58:29 BST 2004


Núna á föstudaginn verður 2. vísindaferð vetrarins. Farið verður í
Landsbankann og ætla þýzkunemar að hittast í stúdentakjallaranum fyrir
vísindaferðina, en Arminius mun vera með akstur í bankann þaðan.
Vísindaferðin er milli kl. 17 og 19 að Hafnarstræti 5 (gengið
inn við hliðina á Veiðimanninum).  Eftir vísindaferðina skellum við okkur
saman á einhverja knæpuna og skemmtum okkur fram eftir kvöldi - eða
nóttu! Ókeypis er fyrir félagsmenn Arminiusar í ferðina (og aksturinn
líka) en aðrir þurfa að greiða krónur 500. Nú ættu því allir að skrá sig í
félagið!!

FÉLAGSAÐILD AÐ ARMINIUSI SKÓLAÁRIÐ 2004 - 2005

Nú er byrjað að selja félagsskírteini Arminiusar. Félagsaðild kostar
einungis 1500 krónur og er margvíslegur ávinningur í því að ganga í
félagið. Fyrir það fyrsta fylgir félagsaðildinni ókeypis aðgangur að öllum
vísindaferðum vetrarins. Fyrir félagsmenn verður líka mun ódýrara á
jólaskemmtun Arminiusar sem verður haldin síðasta föstudag í nóvember, eða
einungis krónur 700 í staðinn fyrir krónur 1500. Síðast en ekki síst eru
félagsmenn Arminiusar einnig félagsmenn Germaniu, en félagið stendur fyrir
margvíslegum menningarviðburðum. Eftir áramót verður svo ekki minna um að
vera í félagslífinu, árshátíð, vísindaferðir og margt fleira. Ofan á þetta
fá svo félagsmenn afslátt á Café Cultura þegar Stammtisch er haldið, eða
stóran bjór á krónur 500 og 10% afslátt af öllu öðru.

Ljóst er að ávinningurinn er mikill. Endilega verið virk í félagslífinu í
vetur og gangið í félagið.

Til þess að ganga í félagið getið þið sent póst á mig og ég sendi til baka
upplýsingar um bankanúmer sem bezt væri að leggja félagsgjaldið inn á.
Jafnframt er hægt að reyna að hitta á einhvern úr stjórninni (Palla,
Særúnu, Silviu og Bryndísi) og borga gjaldið. Bezt er þó að senda póst og
millifæra í gegnum heimabanka. Nú þeir sem hafa ekkert af ofantöldu geta
fengið sendan gíróseðil en þá leggst lítið gjald ofan á upphæðina.

Ekki bíða með að skrá ykkur og athugið einungis félagsmenn fá ókeypis í
vísindaferðina á föstudag!!

Fyrir hönd Arminiusar,
Palli



More information about the Arminius mailing list