Hvað virkar og hvað virkar ekki? Þróun klasa - sögur af klasasigrum

Málstofa um klasamál verður haldin föstudaginn 15 mars frá kl. 17:15 –
18:15 í stofu HT-102 á Háskólatorgi.

Cluster Development – International Best Practices

Einn af fremstu sérfræðingum á sviði klasamála, Ifor Ffowcs-Williams, er
á leið til landsins í einkaerindum. Hann vill nota tækifærið og hitta alla
áhugasama um málaflokkinn í Íslandsferð sinni. Föstudaginn 15. mars bjóðum
við áhugasömum að koma og hlusta á Ifor flytja erindi sem hann nefnir “Cluster
Development – International Best Practices”.

Þekktur fyrirlesari á alþjóðavísu

Ifor hefur árum saman starfað sem ráðgjafi á sviði klasamála, samkeppnishæfni
og nýsköpunar bæði fyrir fyrirtæki og opinbera aðila . Hann er stofnandi,
fyrrum framkvæmdastjóri og stjórnarmaður ráðgjafanefndar hjá alþjóðlegu
netverki sem miðar að því að bæta samkeppnishæfni landa og landssvæða.
Nýlega gaf hann út bókina Cluster Development - The Go To Handbook þar
sem farið er í innleiðingu á aðferðafræði klasa, skref fyrir skref. Bókin
er þegar notuð víðsvegar um heiminn og hefur hlotið þá viðurkenningu að
vera fyrsta alhliða og ítarlega handbókin um hagkvæmni klasauppbyggingar
og klasaþróunar.

Málstofan hefst stundvíslega kl. 17:15. Skráning á http://www.nmi.is/um-okkur/vidburdir/skraning-klasamal/

Eftirfarandi aðilar koma að fundinum:

Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Sjávarklasinn

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Gekon

Netspor