Eðli og umfang verðtryggingar erlendis.

Föstudaginn 2. mars kl. 11:00 í fundarherbergi
á 3. hæð í Odda, flytur Valdimar Ármann erindi á málstofu Hagfræðideildar
undir yfirskriftinni Eðli og umfang verðtryggingar erlendis.

Farið verður yfir sögu verðtryggingar
í vestrænum ríkjum og uppbyggingu markaðar með verðtryggðar vörur. Raktar
verða helstu ástæður vaxandi vinsælda verðtryggðs markaðar. Sýnd verða
dæmi um skuldabréf og afleiður sem eru undirstöður markaðarins og hvernig
vöruþróunin færðist frá nafnvöxtum og raunvöxtum yfir í hreina verðbólgu.
Farið verður yfir helstu aðila markaðar og hvert hlutverk banka er
í að koma saman kaupendum og seljendum verðbólgu.

Valdimar starfar hjá GAM Management
hf. sem rekur verðbréfasjóði og fagfjárfestasjóði. Hann er útskrifaður
hagfræðingur frá Háskóla Íslands og fjármálaverkfræðingur frá Háskólanum
í Reading, Englandi. Valdimar hefur starfað hjá ABN AMRO í London við verðbólgutengdar
afurðir frá 2003-2006 og síðan í New York frá 2006-2008 hjá sama banka
og síðast RBS. Starf hans var fólgið í þróun og hönnun verðbólgutengdra
afurða ásamt miðlun, verðlagningu og áhættuvörnum á verðbólgutengdum afleiðum.
Fyrst starfaði Valdimar hjá Búnaðarbankanum í afleiðum og gjaldeyrisviðskiptum.

Allir velkomnir