Vinsamlegast athugið, málstofan er klukkan
10.

Málstofa á vegum Hagfræðideildar:

Húsnæðismarkaður í DSGE líkani

Oddi, 3. hæð, föstudaginn 13. jan kl.
10-11

Aðalheiður fjallar í erindi sínu um
svokallað Dynamic Stochastic General Equilibrium (DSGE) líkan. Líkanið
er byggt á hagnaðarhámörkun fyrirtækja og nytjahámörkun neytenda,
sem fá nyt af neyslu almenns gæðis, húsnæðis og frítíma. Líkanið er byggt
á tveimur týpum af neytendum sem hafa mismunandi afvöxtunarstuðla. Sú forsenda
er nægileg til að tryggja að lánamarkaður verði til, þar sem þeir óþolinmóðu
fá lánaða fjármuni frá hinum þolinmóðu. Lán eru þó aðeins veitt gegn veði
í húsnæði, en sú forsenda býr til sterk tengsl milli eigna- og lánamarkaða.
Að hætti fleiri svipaðra Ný-Keynsískra líkana er gert ráð fyrir að laun
og verð séu tregbreytanleg og ákvörðuð samkvæmt Calvo líkaninu. Einnig
er gengið út frá því að raunbreytur séu tregbreytanlegar. Þessar forsendur
eru nægilegar til að fá breytur líkansins til að leyta aftur í jafnvægi
með svipuðum hætti og við sjáum raunverulegar hagstærðir hegða sér. Viðbrögð
breytanna við hækkun lánsvaxta eru könnuð við tvær mismunandi aðstæður
á lánamarkaðnum.

Aðalheiður Guðlaugsdóttir stundar doktorsnám
við Aarhus Universitet. Rannsóknir hennar beinast að því að færa eignamarkaði
inn í þjóðhagslíkön, nánar tiltekið DSGE líkön. Hún er einnig tengd við
rannsóknarsetrið CREATES (Center of Research in Econometric Analysis of
Time Series).