Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: V eða W - hvert stefna vestræn
hagkerfi?

Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 22. nóv. kl. 12-13

Haustið 2008 hrikti mjög í fjármálakerfum flestra Vesturlanda. Í kjölfarið
varð snarpur samdráttur í efnahagslífi nær allra landanna, sérstaklega
árið 2009. Um skeið virtist sem hið versta væri liðið hjá en nú eru enn
blikur á lofti. Fjármálakrísan er augljóslega ekki lengur fyrst og fremst
bankakrísa heldur einnig í mörgum tilfellum orðin alvarleg ríkisfjármálakrísa.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þá stöðu sem upp er komin, aðdragandinn
rakinn og skoðað hvaða sviðsmyndir hægt er að draga upp fyrir framtíðina
í ljósi þess sem nú liggur fyrir. Horft verður til óróleikans í Evrópu
en einnig á stöðuna í Bandaríkjunum, þar sem saman fer mikill fjárlaga-
og viðskiptahalli, miklar opinberar skuldir og illviðráðanlegar lífeyrisskuldbindingar,
til Japan, þar sem ríkt hefur stöðnun í nær tvo áratugi og opinberar skuldir
slá öll met og Kína, þar sem m.a. eru verulegar áhyggjur af fasteignaverðsbólu
og stöðu bankakerfisins.

Gylfi Magnússon er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands