Small Countries, Important Innovations

Fyrirlestur á vegum Hagfræðideildar
og Viðskiptafræðideildar í tilefni sjötugsafmælis Þráins Eggertssonar

Hátíðasalur Háskóla Íslands,

Miðvikudaginn 26. október kl. 12:00-13:30

Í fyrirlestrinum fjallar prófessor Benham
um framlag smáþjóða til uppfinninga, en framlag Íslands og Íslendinga til
uppfinninga er hlutfallslega mjög stórt. Uppfinningar eru uppspretta hagvaxtar,
og Benham veltir fyrir sér þremur spurningum:

• Hvers
vegna eru rætur uppfinninga ákaflega staðbundnar?

• Hvers
vegna er ekki meira um uppfinningar þvert og breitt um heiminn?

• Hvers
vegna hafa hagfræðingar vanrækt að kanna þær aðstæður sem leggja grunninn
að uppfinningum?

Lee Benham er prófessor emeritus við
hagfræðideild Washington University í St. Louis og stjórnarmaður og kennari
við Ronald Coase Institute.

Nóbelshafinn Ronald Coase setti á fót
stofnunina sem við hann er kennd til að þjálfa unga fræðimenn frá þróunarlöndunum
í greiningu á skipulagi hagkerfa. Lee Benham tók einnig þátt í því með
Ronald Coase, Douglass North, og Oliver Williamson, þremur Nóbelshöfum,
að stofna samtökin International Society for New Institutional Economics.
Benham hefur doktorspróf í hagfræði frá Stanford háskóla og var um árabil
prófessor við Viðskiptafræðideild Chicago háskóla. Benham hefur fengið
ýmsar viðurkenningar: Hann er talinn með í Who is Who in Economics: A Biographical
Dictionary of Major Economists 1700-1986; og hefur fengið viðurkenningu
Social Science Citation Index fyrir klassíska fræðiritgerð. Sérgreinar
Benhams eru vinnumarkaðshagfræði, heilsuhagfræði og nýja stofnanahagfræðin.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.