Ágæti viðtakandi.

Um leið og við þökkum þér samstarfið fyrr og síðar viljum við bjóða þér
til útgáfuhófs í tilefni af útkomu desember heftis vefritsins; Stjórnmál
og stjórnsýslaOkkur þætti vænt um ef þú sæir þér fært að líta við.

Hófið hefst kl. 16.30 þriðjudaginn 14. desember í Odda stofu 101 með stuttum
fyrirlestrum höfunda efnis í desemberheftinu.

Gunnar Helgi Kristinsson prófessor mun ræða áhugaverðar niðurstöður
rannsóknar sinnar um íslenska stjórnmálaflokka sem ber yfirskriftina "Fjölmennustu
flokkar heims. Meðlimaskipulag íslenskra stjórnmálaflokka", en
í greininni er gerð tilraun til að skýra þá staðreynd að tölur yfir meðlimi
íslenskra stjórnmálaflokka benda til að stærra hlutfall kjósenda þeirra
séu skráðir meðlimir en dæmi eru um annars staðar í þróuðum lýðræðisríkjum.

Að því loknu mun Sturla Böðvarsson, fv. forseti Alþingis og fv. ráðherra
ræða efni greinar sinnar "Breytingar á þingskaparlögum
og eftirlitshlutverk Alþingis".  Bryndís Hlöðversdóttir
aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst og fv. alþingismaður mun
síðan bregðast við grein Sturlu. Þess má geta að Bryndís var höfundur
að drögum að frv. um rannsóknarnefndir sem forseti Alþingis mælti fyrir
7. des. sl.., sem er ætlað að styrkja eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu.

Fyrirspurnir og umræður verða að loknum erindum til ca. kl. 17.30 og
síðan móttaka á eftir á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Efni tölublaðsins verður fjölbreytt sex fræðigreinar og fimm almennar greinar.
Greinarnar fjalla um fjölbreytt efni íslenskrar stjórnsýslu og stjórnmála.
Að venju birtast ritdómar um nýjar bækur.

Með bestu kveðjum frá ritstjórn og forstöðumanni,

Ásta Möller

Arnar Þór Másson,

Gunnar Helgi Kristinsson

Haukur Arnþórsson

Margrét S. Björnsdóttir

Ómar H. Kristmundsson.