Fjármálaráðuneytið, Sóknaráætlun
20/20, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða við
HÍ bjóða til......

...ráðstefnu og vinnustofu um
endurskipulagningu opinberrar þjónustu

Grand Hótel – fimmtudaginn
18. febrúar 2010, kl. 8:00-11:00. Dagskráin hefst kl. 8:30.

Þátttökugjald er 3.900 kr. og er morgunverður innifalinn.
Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/endurskipulagning

1. Fjármálaráðherra Steingrímur
J. Sigfússon kynnir það sem framundan er og nauðsyn endurskipulagningar
ríkisrekstrarins í því ljósi.

2. Ragnhildur Arnljótsdóttir
ráðuneytisstjóri og Arnar Másson fjármálaráðuneyti kynna fyrirliggjandi
hugmyndir að endurskipulagningu og stjórnkerfisbreytingum.

3. Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri
kynnir fyrirhugaðar tilfærslur á verkefnum til sveitarfélaga og áhrif
þeirra.

4. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
kynnir vinnulag við nýlega sameiningu skattumdæma, sem dæmi um endurskipulagningu
opinberrar þjónustu.

5. Þátttakendur leggja inn hugmyndir
að tækifærum í endurskipulagningu og breyttri verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga.

(Sjá nánari dagskrá neðst í póstinum)

Ráðstefnustjóri er Berglind
Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á
um umtalsverðar stjórnkerfisbreytingar og umbætur í því skyni að gera þjónustu
hins opinbera við almenning og atvinnulíf eins góða og kostur er með fjármunum
sem til ráðstöfunar eru hverju sinni. Þá er í þingsályktunartillögu um
sóknaráætlun til að efla atvinnulíf og samfélag um allt land, sem nú liggur
fyrir Alþingi, fjallað um endurskipulagningu opinberrar þjónustu og eflingu
sveitarstjórnarstigsins. Markmiðið
er að forgangsraða í ríkisrekstrinum með nýjum hætti, verja grunnþjónustu,
auka skilvirkni í ríkisrekstri með stærri og hagkvæmari einingum, einfalda
stjórnsýslu og þjónustu, endurskoða verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga
og gera ríkiskerfið betur í stakk búið til að takast á við breytingar.

Þó að staða ríkisfjármála kalli
á endurskipulagningu eru breytingar á ákveðnum sviðum löngu tímabærar,
m.a. vegna breytinga sem orðið hafa á þörfum fólks í samfélaginu, byggðaþróun
og tækniþróun. Flest ráðuneyti hafa farið yfir verkefnin
sem þau sinna og við það hafa kviknað fjölmargar hugmyndir um sameiningar
stofnana og breytingar á verkefnum. Sumu hefur þegar verið hrint í framkvæmd
meðan annað er styttra á veg komið.

Fyrr í vetur var haldin ráðstefna um sameiningu og
endurskipulagningu stofnana. Þar var rætt almennt um það hvernig best væri
að standa að breytingum eins og þeim sem nú eru á döfinni. Þessi ráðstefna
er framhald af þeirri fyrri og skiptist hún í tvo hluta:

I. Í fyrri hlutanum verður rædd nauðsyn þess að
ráðast í viðamiklar skipulagsbreytingar á þessum tímapunkti og leitað svara
við þremur spurningum tengdum endurskipulagningu opinberrar þjónustu: Af
hverju erum við að endurskipuleggja opinbera þjónustu? Hvaða þjónustu eigum
við að endurskipuleggja? Hvernig förum við að því?

II. Í síðari hlutanum gefst ráðstefnugestum færi
á að ræða tækifæri og möguleika sem felast þeim hugmyndum sem uppi eru
um breytingar.

Dagskrá

Kl. 8:00 Morgunverður og skráning
þátttakenda.

Kl. 8:30 Ráðstefnustjóri býður
gesti velkomna og fer yfir skipulag og markmið fundarins.

Af hverju?

Kl. 8:40 Fjármálaráðherra fjallar
um nauðsyn endurskipulagningar opinberrar þjónustu.

Hvað?

Kl. 9:00 Ragnhildur Arnljótsdóttir,
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, og Arnar Þór Másson, sérfræðingur
í fjármálaráðuneytinu, fara yfir helstu hugmyndir sem hafa verið til umræðu
innan ráðuneyta um endurskipulagningu þjónustu hjá ríkinu og tengja þær
við aðrar áformaðar stjórn­kerfisbreytingar.

Kl. 9:20 Ragnhildur Hjaltadóttir,
ráðuneytisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, fer yfir áform
um eflingu sveitarstjórnarstigsins, tilflutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga
og hvaða áhrif hann getur haft á skipulag opinberrar þjónustu.

Hvernig?

Kl. 9:40 Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri greinir frá vinnu um sameiningu níu skattaumdæma í eitt
með mörgum starfsstöðvum.

Kl. 10:00 Vinnustofa um endurskipulagningu
opinberrar þjónustu. Þátttakendum, ásamt verkstjóra sem verður á hverju
borði,  er falið að fjalla aðra hvora eftirfarandi spurninga og skila
tillögum:

Hvar eru helstu tækifærin við sameiningu
ráðuneyta og stofnana?

Hvar eru helstu tækifærin í tengslum
við eflingu sveitarstjórnarstigsins og aukins samstarfs um veitingu þjónustu
ríkis og sveitarfélaga?

Kl. 11:00 Ráðstefnuslit