Í dag:

Áhrif ESB-umsóknar Íslands á Noreg og EES samninginn?-
Í Odda stofu 101, miðvikudaginn 26. ágúst kl. 12.00-13.15:

Á opnum hádegisfyrirlestri, sem fram fer á ensku, í
Háskóla Íslands nk. miðvikudag, mun einn helsti sérfræðingur Norðmanna
í málefnum EES og ESB, Paal Frisvold, formaður norsku Evrópuhreyfingarinnar,
ræða áhrif aðildarumsóknar Ísland að ESB í Noregi. Norðmenn ganga til þingkosninga
í haust og er líklegt að ESB aðild landsins verði meðal lykilkosningamála
og myndi breytt afstaða Noregs vissulega hafa áhrif á aðildarumsókn Íslands
Með Paal í för verður Vidar Björnstad, þingmaður Verkamannaflokksins
á norska Stórþinginu og áhrifamaður í norsku verkalýðshreyfingunni og mun
hann taka þátt umræðum að loknum fyrirlestri Paal. Fundarstjóri
verður Siv Friðleifsdóttir alþingismaður.

Að fundinum standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
við HÍ og Evrópusamtökin.

Paal Frisvold er þekktur í Noregi sem einn helsti sérfræðingur
landsins í málefnum EES samningsins og samskiptum Noregs við ESB. Hann
stofnaði ráðgjafafyrirtækið The Brussels Office árið 2001 og hefur meðal
annars mörg verkefni á sviði umhverfismála . http://www.thebrusselsoffice.eu/Ourteam/Paal/tabid/197/Default.aspx

Hann var nýverið kjörinn formaður norsku Evrópuhreyfingarinnar.