Hvernig má ná auknum árangri
í rafrænni stjórnsýslu? Hvað má læra af öðrum OECD ríkjum?

Föstudaginn 13. mars nk. kl. 8.00-ca.
10.00 verður haldið á Grand hótel í Reykjavík morgunverðarmálþing með
einum af helstu sérfræðingum OECD í árangri ríkja og stofnana á sviði rafrænnar
stjórnsýslu, nýútskrifuðum doktor frá Háskóla Íslands á þessu sviði og
þeim sem stýra innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu á Íslandi fh. forsætisráðuneytisins.
Fundarstjóri er Haukur Ingibergsson formaður Félags forstöðumanna ríkisstofana.

Að málþinginu standa Félag forstöðumanna
ríkisstofnana, forsætisráðuneyti, Stofnun stjórnsýslufræða v. Háskóla Íslands
og Skýrslutæknifélag Íslands.

Þátttökugjald er kr. 4.900.- og
er morgunverður innifalinn, verð f. háskólanema kr. 2.500.-. Skráning er
á hlekknum: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/rafraenstjornsysla

Megintilgangur málþingsins er
að fjalla um þætti sem ráða árangri ríkja og stofnana á þessu sviði:

Dagskrá:

8.30-9.10: Yih-Jeou Wang: E-Government
development in OECD countries – lessons learned:

"After a short introduction
on how Iceland compare in different international benchmarkings, Mr. Wang
will focus on lessons learned from the last 10 years of e-government work
at the OECD: a number of cross-cutting challenges will be described (e.g.
leadership, organisation, collaboration and co-operation, and capacity
for implementation) based on recent OECD studies and eight country studies
of e-government. Using the international development trends as seen today,
Mr. Wang will give his bid on how the e-government agenda might look like
in 2020."

Yih-Jeou Wang stýrir verkefnum
OECD er lúta að rafrænni stjórnsýslu (OECD E-Government Project ), árangri
einstakra landa og samanburði milli landa á árangri, og áhrifum rafrænnar
stjórnsýslu á stjórnun hins opinbera. Hann hefur fengist við þetta svið
frá árinu 1995 fyrst í Danmörku og síðan hjá OECD.

9.15-9.35: Dr. Haukur
Arnþórsson stjórnsýslufræðingur: Hvað skýrir slaka útkomu Íslands í rafrænni
stjórnsýslu og hvaða leiðir eru líklegar til að bæta þar úr?

Haukur mun kynna meginniðurstöður
sinnar rannsóknar og velta fyrir sér hvaða leiðir gætu skilað betri árangri
í framtíðinni.

9.40-ca. kl. 10.00: Guðbjörg
Sigurðardóttir skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti: Árangur í rafrænni
stjórnsýslu - Breytt verklag byggt á reynslu.

Guðbjörg mun fjalla um úttektir sem gerðar hafa verið á Íslandi um rafræna
stjórnsýslu, hvaða lærdóm opinberir aðilar hafa dregið af þeim og hvernig
verklagi hefur verið breytt í kjölfar þeirra til að bæta árangur í rafrænni
stjórnsýslu.