Þorvaldur Gylfason prófessor heldur fyrirlesturinn
Evrópa: Minni vinna, meiri vöxtur í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands þriðjudaginn 6. mars kl. 12.15. Málstofan er haldin í Odda
stofu 101.

Peningar eru ekki allt. Þótt landsframleiðsla á mann sé
enn sem jafnan fyrr meiri í Bandaríkjunum en í mörgum Evrópulöndum, er
landsframleiðsla á hverja vinnustund nú orðin meiri í nokkrum Evrópulöndum
en í Bandaríkjunum. Þetta stafar af því, að margir Evrópumenn kjósa –
og hafa efni á! – að vinna minna með því til dæmis að fara fyrr á eftirlaun
en margir Bandaríkjamenn. Líffræðilegar staðtölur um lífskjör reistar á
mælingum á líkamshæð fólks í ólíkum löndum segja svipaða sögu. Undangengna
áratugi hefur tognað svo úr fullvöxnum Evrópumönnum, að þeir eru að meðtali
orðnir mun hærri í loftinu en Bandaríkjamenn – og voru þó fyrir einum
mannsaldri talsvert lægri að vexti en Bandaríkjamenn. Við þetta bætist,
að Evrópumenn vinna nú mun færri stundir á ári en Bandaríkjamenn. Meira
umburðarlyndi gagnvart ójöfnuði í skiptingu auðs og tekna í Bandaríkjunum
en í Evrópu kann að hafa tekið sinn toll.