Þriðjudaginn 16. janúar 2007, kl. 16:00, flytur Ragnar
Árnason prófessor fyrirlestur sem nefnist Tekjudreifing á Íslandi frá 1993
á vegum viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer
fram í stofu 101 í Odda.

Í fyrirlestrinum er fjallað um tekjudreifingu á Íslandi og þróun hennar
frá árinu 1993. Farið er yfir helstu mælikvarða á tekjudreifingu og rætt
um kosti þeirra og veikleika. Þá er fjallað um um tekjudreifingu á Íslandi
og framvindu hennar á tímabilinu 1993 til 2005. Byggt er á gögnum frá ríkisskattstjóra.
Bæði dreifing atvinnutekna og samanlagðra atvinnutekna og fjármagnstekna
er skoðuð.

Fyrirlesturinn er opinn öllum.

Með kærri kveðju,

Áshildur Bragadóttir,

Kynningarstjóri

Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands

s. 525 4536 / 862 9680

ashildb@hi.is

http://www.vidskipti.hi.is