[Vid-stund] Vegna Turnitin námskeiðs -

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Mon Sep 17 13:51:37 GMT 2018


[cid:image001.png at 01D44697.B09444E0]







Við vekjum athygli ykkar á eftirfarandi námskeiði:



Turnitin

21. sep - 12:30 til 14:00  | Staðsetning: Oddi 102





Markhópur: Kennarar FVS og VON



Leiðbeinandi: Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Kennslumiðstöð.



Hæfnisviðmið: Eftir námskeiðið þekkja þátttakendur möguleika Feedback Studio og geta notað hugbúnaðinn til að setja upp verkefnaskilahólf fyrir nemendur. Hafa getu til að skoða samsvaranir í textum nemenda við höfundaréttarvarið efni og kunnáttu til að geta gefið nemendum endurgjöf í gegnum forritið.



Efnistök: Stutt kynning á möguleikum endurgjafa- og ritstuldarvarnarforritsins Turnitin Feedback Studio og reglum HÍ um viðbrögð við ritstuldi. Kennarar Háskóla Íslands geta notað forritið til að taka við verkefnum nemenda, skoða samsvaranir í textum og veita nemendum endurgjöf. Námskeiðið miðast við að þátttakendur séu að nota Uglu sem kennslukerfi og vefsvæði Turnitin til að taka við verkefnum frá nemendum. Þátttakendur á námskeiðinu fara í gegnum það ferli að stofna námskeið og verkefni. Þeim er sýnt hvernig þeir ná í nemendalista í Uglu til að flytja inn í námskeið í Turnitin. Þá setja þeir inn nemendaverkefni eða eigin texta, skoða samsvaranir og prófa nokkur endurgjafaverkfæri.


Skráning fer fram á Uglunni.

https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=2873







-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20180917/5cbcbcf6/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.jpg
Type: image/jpeg
Size: 4500 bytes
Desc: image001.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20180917/5cbcbcf6/attachment.jpg>


More information about the Vid-stund mailing list