[Vid-stund] frá Háskóla Íslands - til stundakennara í Viðskiptafræðideild

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Wed Oct 10 11:41:53 GMT 2018


Kynningarfundur um val á námsumsjónarkerfi, 18. október kl. 15


Litla-torg (3914), 18.10.18 kl: 15:00 - Sjá nánar.<https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=3041>

Kynningarfundur um val á námsumsjónarkerfi, fimmtudaginn 18. október nk. kl. 15 á Litla-torgi (Háskólatorgi)

Í maí 2018 var settur á laggirnar faghópur um námsumsjónarkerfi til að gera tillögur til rektors um eitt námsumsjónarkerfi sem notað yrði til frambúðar við Háskólann. Með námsumsjónarkerfi er hér átt við það sem á ensku kallast "Learning management system" (LMS).  Slíkum kerfum er m.a. ætlað að halda utan um kennsluáætlanir, námskeið, stundatöflur, einkunnagjöf og alla upplýsingagjöf milli nemenda og kennara. Núna eru einkum tvö námsumsjónarkerfi í notkun við Háskóla Íslands, sérhönnuð kerfiseining í Uglu og Moodle. Mikil þróun hefur átt sér stað á sviði námsumsjónarkerfa á alþjóðlegum vettvangi og er því ástæða til að skoða ítarlega hvaða kerfislausn sé talin henta Háskóla Íslands best.

Faghópinn skipa aðilar frá öllum fræðasviðum og stjórnsýslu Háskólans. Hópurinn vill leggja áherslu á að ná sem víðtækustu samráði við notendur námsumsjónarkerfa, kennara, nemendur og starfsfólk í stjórnsýslu. Í því skyni hefur verið ákveðið að halda opinn kynningarfund um námsumsjónarkerfi 18. október nk. kl. 15:00 á Litla-torgi (Háskólatorgi).  Markmið fundarins er annars vegar að kynna vinnu faghópsins og hins vegar að leita sjónarmiða fundarfólks um námsumsjónarkerfi.

Áhugasamir tilkynni þátttöku sína með því að senda tölvupóst á baldure at hi.is<mailto:baldure at hi.is>.

Faghópurinn hefur einnig ákveðið að gera stutta viðhorfskönnun sem hægt er að taka þátt í með því að smella hér<https://forms.office.com/Pages/ResponsePage.aspx?id=Dl_6CRghVkaFKWd-2P2-eMkF_OqejrVJpbnx5VfuWzlUMEc5SkZTNDc5MzdaSUM2Q0hMUjRSWEpKRSQlQCN0PWcu>.

Við viljum hvetja ykkur sem flest til að koma á samráðsfundinn og einnig að taka þátt í viðhorfskönnuninni. Víðtækt samráð stuðlar að farsælli innleiðingu!

Bestu kveðjur
f.h. faghóps

Róbert H. Haraldsson, Ph.D.
Sviðsstjóri kennslusviðs
Prófessor í heimspeki
Háskóli Íslands
Aðalbygging, herbergi 225
Sæmundargata 2
101 Reykjavík
Sími 525 4277
Tölvup. robhar at hi.is<mailto:robhar at hi.is>


Kristín Klara Einarsdóttir
deildarstjóri
Viðskiptafræðideildar
Háskóla Íslands
Sími 525-4501

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20181010/319a54f8/attachment.html>


More information about the Vid-stund mailing list