[Vid-stund] Nýtt tölublað Tímarits um viðskipti og efnahagsmál komið á vefinn- sex nýjar ritrýndar fræðigrein um fjölbreytt efni

VIÐ-HAG deildarskrifstofa vidoghag at hi.is
Wed Jul 5 11:40:10 GMT 2017


Út er komið nýtt hefti Tímarits um viðskipti og efnahagsmál,  1. tölublað 
14. árgangs, júní 2017.  Greinarnar má lesa í opnum aðgangi á vefsetri 
tímaritsins: http://www.efnahagsmal.is/
Tímaritið er gefið út í samvinnu viðskipta- og hagfræðideilda Háskóla 
Íslands, viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Seðlabanka Íslands. Í 
ritstjórn sitja þau Gylfi Zoega, Ph.D, prófessor við hagfræðideild Háskóla 
Íslands, gz at hi.is -Auður Arna Arnarsdóttir, Ph.D, lektor við 
viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík, auduraa at hr.is -Þórhallur Örn 
Gudlaugsson, Ph.D, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, 
th at hi.is og Birgir Þór Runólfsson, Ph.D, dósent við viðskiptafræðideild 
Háskóla Íslands, bthru at hi.is Umsjón með útgáfu hefur Stofnun 
stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Tímaritinu er ætlað að vera vettvangur fyrir fræðilegar ritgerðir í 
viðskipta- og hagfræði og í þetta sinn eru birtar eftir ellefu höfunda 
fimm ritrýndar greinar og ein að auki sem birt verður fyrir 15. júlí:

Greinarnar sem fjalla um fjölbreytt efni eru:
...hvað segið þið strákar? Upplifun kvenmillistjórnenda af stöðu sinni, 
möguleikum og hindrunum í starfi
eftir Unni Dóru Einarsdóttur, Erlu S. Kristjánsdóttur og Þóru H. 
Christiansen

Umhverfi og starfsemi endurskoðunarnefnda – bakgrunnur nefndarmanna og 
traust á fjárhagsupplýsingum
eftir Einar Guðbjartsson og Jón Snorra Snorrason

Marketing communication towards cruise ship passengers: the implications 
of market segmentation
eftir Gunnar Óskarsson og Irenu Georgsdóttur

Microfinance institutions’ failure to address poverty: A narrative 
critical literature review
eftir Sigurð Guðjónsson

Ferðaþjónusta og virkjanir til bjargar byggðum?
eftir Önnu Dóru Sæþórsdóttur og Þorkel Stefánsson

Efficient pricing of tourist sites*
eftir Ragnar Árnason.
* Greinin verður birt á vefnum fljótlega.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20170705/6fcc6991/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 374 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20170705/6fcc6991/attachment.gif>


More information about the Vid-stund mailing list