[Vid-stund] Leiðbeiningar um skráningu lokaeinkunna á Uglu

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Fri Dec 8 09:29:11 GMT 2017


Sæl.
Ég var beðin um að áframsenda þetta til allra kennara:

BLB/EE/Kris/ 11/2017
Leiðbeiningar til kennara um skráningu einkunna í Uglu.

Þegar kennari skráir lokaeinkunn í Uglu birtist fellilisti með fjórum 
valmöguleikum:

1.      Einkunnaskali frá 0,0-10
2.      Staðið án einkunnar
3.      Fall án einkunnar
4.      Fjarverandi.
Einkunnaskali frá 0,0-10
a)      Þegar að nemandi stenst námskeið með lágmarkseinkunn (5,0 eða 6,0) 
er Uglan forrituð til að setja stöðuna Staðið í meðaleinkunn.
b)      Þegar nemandi hefur ekki staðist námskeið (einkunn 4,5 eða lægri) 
er Uglan forrituð til að setja stöðuna Fall með einkunn.
c)      Ef nemandi skilar hluta af námsmati sem byggir á  100% 
verkefnavinnu eða stenst ekki matið, þrátt fyrir að skila öllum verkefnum, 
skal gefa einkunn.
d)      Einnig skal gefa einkunn ef nemandi stenst ekki lokapróf og gerð 
er krafa um lágmarkseinkunn  (5,0 eða 6,0) í lokaprófinu, áður en aðrir 
námsþættir eru reiknaðir inn í lokaeinkunn.
Staðið án einkunnar
Ef einkunn fyrir námsmat er staðið/fallið og nemandi stenst námskeiðið 
skal skrá Staðið án einkunnar
Fall án einkunnar
Ef einkunn fyrir námsmat er staðið/fallið og nemandi hefur ekki staðist 
námskeiðið skal gefa Fall án einkunnar. Í undantekningatilfellum má skrá 
Fall án einkunnar þegar  nemandi hefur staðist lokapróf og kennari 
heimilar síðbúin skil á verkefni.
Fjarverandi
a)      Ef nemandi mætir ekki til lokaprófs skal velja Fjarverandi. 
Nemandi sem ekki mætir til prófs (og skilar ekki vottorði) er fallinn í 
námskeiðinu, skv. reglum HÍ. Nemandinn getur þá ekki skráð sig sjálfur í 
Uglu í endurtökupróf heldur þarf að skrá sig á ný í námskeiðið næst þegar 
það er haldið. 
b)      Nemandi sem er skráður í námskeið en skilar engum verkefnum, né 
prófum skal skráður fjarverandi.














----- Forwarded by Kristín Klara Einarsdóttir/HI/IS on 08.12.2017 09:27 
-----

From:   Elva Ellertsdóttir/HI/IS
To:     Alma Möller/HI/IS at HI, Kristín Klara Einarsdóttir/HI/IS at HI, Sigrún 
Dögg H Kvaran/HI/IS at HI, Erna Rut Steinsdóttir/HI/IS at HI
Cc:     Brynhildur Lilja Björnsdóttir/HI/IS at HI, Kristín 
Jónasdóttir/HI/IS at HI
Date:   05.12.2017 14:20
Subject:        Leiðbeiningar um skráningu lokaeinkunna á Uglu


Sælar,

Í viðhengi eru leiðbeiningar til kennara um skráningu lokaeinkunna á Uglu, 
sem Brynhildur, Kristín Jónasar og ég endurbættum og eru nú vonandi 
skýrar.  Endilega látið okkur vita ef þið sjáið eitthvað athugavert - 
annars bara að senda á kennara. 






Bestu kveðjur,
Elva Ellertsdóttir
deildarstjóri Stjórnmálafræðideildar
Gimli v/Sæmundargötu
101 Reykjavík
netfang: elva at hi.is
sími: 525-4573

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20171208/0e6dd1c9/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 124243 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20171208/0e6dd1c9/attachment-0001.jpe>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Lei?beiningar um skr?ningu lokaeinkunna ? Uglu.docx
Type: application/octet-stream
Size: 18306 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20171208/0e6dd1c9/attachment-0001.obj>


More information about the Vid-stund mailing list