[Vid-stund] nemendur með sérþarfir og misserispróf
Kristín Klara Einarsdóttir
kke at hi.is
Fri Sep 25 11:56:04 GMT 2015
Sæl.
Að gefnu tilefni vil ég koma því á framfæri að ef nemendur sem hafa fengið
samþykki fyrir einhverjum sérúrræðum í prófum hjá Námsráðgjöf eiga að taka
misserispróf eða hlutapróf, sem kennari leggur fyrir hvort sem þau gilda
til lokaeinkunnar eða til upphækkunar þá eiga þessir nemendur rétt á þeim
úrræðum sem þeir hafa í lokaprófum.
Best er því fyrir þá kennara sem vilja leggja sjálfir fyrir próf í tíma
að biðja þá nemendur sem eru með uppáskrifað frá Námsráðgjöf að þeir eigi
að fá sérúrræði í prófi að hafa samband og þá er hægt að bregðast við áður
en skyndiprófið er lagt fram. Fjölmargir nemendur þurfa t.d. lituð
prófblöð í lokaprófum og rétt á lengri próftíma.
Kveðja,
KK
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20150925/73527bd1/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 124243 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20150925/73527bd1/attachment-0001.jpe>
More information about the Vid-stund
mailing list