[Vid-stund] Minnt er á frest til 15. apríl 2015 til að skila ritrýndum greinum í 1. tölublað 11. árg. 2015: Stjórnmál og stjórnsýsla - A call for papers- Icelandic Review of Politics and Administration- IRPA
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Tue Mar 17 09:16:46 GMT 2015
Til fræðimanna á sviði stjórnmála- og stjórnsýslufræða og tengdra
fræðigreina. (ENGLISH TEXT BELOW)
Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla er gefið út tvisvar á ári í opnum
aðgangi á vefsvæði þess www.irpa.is (eða www.stjornmalogstjornsysla.is) í
júní og í desember. Ritrýndar fræðigreinar hvers árgangs eru gefnar út á
prentuðu formi í febrúar árið eftir. Útgefandi er Stofnun stjórnsýslufræða
og stjórnmála við Háskóla Íslands.
Tilgangur tímaritsins er að gefa út og gera aðgengilegt þverfræðilegt efni
um rannsóknir á sviði stjórnmála, stjórnsýslu og alþjóðamála með það fyrir
augum að auka við þekkingu og efla faglega umræðu á þessum sviðum á
Íslandi. Ritrýndi hluti tímaritsins gegnir hlutverki fræðitímarits í
stjórnmála- og stjórnsýslufræðum. Í veftímaritinu er stjórnmála- og
stjórnsýslufræðingum, félagsfræðingum, hagfræðingum, heimspekingum,
lögfræðingum, sagnfræðingum, viðskiptafræðingum og öðrum þeim er stunda
rannsóknir og skrifa um þau viðfangsefni gefinn kostur á að gera
rannsóknir sínar aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu
greinarnar fjalla um sömu viðfangsefni en eru opinn vettvangur. Í
vefritinu eru eftirtaldir efnisflokkar: ritrýndar fræðigreinar, greinar
almenns eðlis og bókadómar.
Veftímaritið er gefið út í íslenskri og enskri útgáfu (Icelandic Review of
Politics and Administration- IRPA).
Frestur til að skila ritrýndum greinum er til 15. apríl 2015
Á vefsvæði timaritsins www.irpa.is eða www.stjornmalogstjornsysla.is er
að finna leiðbeiningar fyrir höfunda greina.
Frá og með vorhefti 2014 hafa skilað höfundar greinum sínum inn á vefsvæði
tímaritsins og þurfa að skrá sig þar inn og fylgja leiðbeiningum þar um.
Höfundur getur fylgst með ferli greinar sinnar í kerfinu og fær
tilkynningu frá því þegar ritrýnir hefur skilað umsögn sinni.
Þegar hafa verið gefin út nítján tölublöð á vefnum. Ritrýndar greinar
hvers árgangs hafa verið prentaðar og eru þær bækur fáanlegar hjá
Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum og bókasöfnum. Einnig er hægt að
gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu af ritrýndum greinum sem birtast í
veftímaritinu og kemur hún út einu sinni á ári. 10. árg. 2014 kemur út í
maí n.k. og kostar áskrift 4600,- Gerast áskrifandi.
Möguleiki er á að panta eldri árganga tímaritsins á netfanginu gpr1 at hi.is
----------------------------------------------------------------------
To scholars in political science, public administration and related
disiplines,
The webjournal The Icelandic Review of Politics and Administration- IRPA
is a scientific journal devoted to the publication of original research in
political science and related disciplines. Its main focus is on themes
which are relevant to Icelandic politics and policy but it is open to a
broader range of articles. All articles of sufficient quality making an
original contribution to political science or one of its sub-fields will
be considered and articles on various aspects of small state studies are
especially welcomed.
Journal articles are published in English or Icelandic. Articles in
Icelandic are accompanied with abstracts and bibliographic information in
English. Publication dates on the web are in June and December each year.
A printed edition is published in May the following year. There are three
sections; peer reviewed articles, articles and speeches and book reviews.
On the journals´ web www.irpa.is you will find guidelines for authors.
The deadline for submitting an article for peer review is April 15tht
2015.
>From spring 2014 authors will submit their articles in the Open Journal
System (OJS) of the journal. Authors are requested to follow instructions
and register with the system see SUBMISSIONS on the journals´web.
Registration and login is required to submit items online and to check the
status of current submissions.
Fyrir hönd ritnefndar,
Gestur Páll Reynisson,
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20150317/df9885a6/attachment.html>
More information about the Vid-stund
mailing list