[Vid-stund] Lokaútkall: Morgunverðarfundur um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Wed Apr 22 12:34:53 GMT 2015
Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála við Stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands kynna:
- Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu -
-Samtal milli stjórnvalda og akademíu -
Skráning fer fram hér
Skráningargjald ásamt morgunverði kr. 5.400
Aukinn einkarekstur og fjölbreytni rekstrarforma í félagslegu
heilbrigðiskerfi getur haft víðtæk áhrif á árangur kerfisins. Markmið
breytinga af þessu tagi er að ná inn tilætluðum kostum markaða um
skilvirkni, hagkvæmni og gæði. Opinber heilbrigðiskerfi sem eru að mestu
fjármögnuð með almennum sköttum hafa margþætt markmið. Auk markmiða um
skilvirkni, hagkvæmni og gæði þá vega markmiðin um jöfnuð, aðgengi og
öryggi þungt þegar litið er til réttmætis félagslegra heilbrigðiskerfa.
Þessi markmið eru og verða viðfangsefni stjórnmálanna. Að tryggja að þessi
ólíku markmið nái fram að ganga er ekki aðeins stjórnunarleg jafnvægislist
heldur mikil pólitísk áskorun.
Stofnun Stjórnmála og stjórnsýslufræða býður til morgunverðarfundar þann
27. apríl næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík á milli kl. 08.00 og 10.00
þar sem efnt er til samtals milli stjórnvalda og akademíu um þær áskoranir
og tækifæri sem felast í breytingum í átt til aukins einkarekstrar í
félagslegum heilbrigðiskerfum. Tilefnið er viljayfirlýsing
ríkisstjórnarinnar og samtaka lækna frá 5. janúar sl. um aðgerðir til að
efla og styrkja íslenska heilbrigðiskerfið.
Þrír framsögumenn úr röðum fræðimanna munu gera grein fyrir sínum skoðunum
en þau verða:
1. Dr. Ragnar Árnason, prófessor við Hagfræðideild Háskóla Íslands
2. Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands
3. Dr. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands.
Að loknum framsögum munu fara fram pallborðsumræður en í pallborði verða
þau Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismenn
ásamt Oddi Steinarssyni, lækningaforstjóra heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins og Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítala.
Fundarstjóri verður Siv Friðleifsdóttir fyrrv. alþingismaður og ráðherra.
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Gimli við Sæmundargötu , 101 Reykjavík.
Netfang stofnunarinnar: stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Vefsetur: www.stjornsyslustofnun.hi.is- heimasíða stofnunarinnar
www.stjornmalogstjornsysla.is - veftímarit
www.nyskopunarvefur.is- vefur um nýsköpun í opinberri þjónustu
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20150422/3156c1a0/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 67191 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20150422/3156c1a0/attachment-0001.gif>
More information about the Vid-stund
mailing list