[Vid-stund] Morgunverðarfundur um fjárlagafrumvarpið 2015 og áhrif niðurskurðar á lögbundið hlutverk stofnana
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Wed Sep 24 14:54:26 GMT 2014
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna
ríkisstofnana í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið kynna:
Morgunverðarfundur með fjármála- og efnahagsráðherra mánudaginn 6. október
kl. 9:00-10.15 á Grand hótel Reykjavík.
Morgunverður frá kl. 8:30
Þátttökugjald kr. 4500,- morgunverður innifalinn. Skráning hér.
Á fundinum mun Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ræða
stöðu og horfur í ríkisfjármálum með hliðsjón af fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 2015, sem nýverið var lagt fram á Alþingi.
Eftir erindi fjármála- og efnahagsráðherra mun Steingrímur Ari Arason,
forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri
Umhverfisstofnunar flytja erindi um frumvarpið ásamt því að fjalla um
áskorun margra opinberra stofnana að verða við hagræðingarkröfu en á sama
tíma að sinna sínu lögboðna hlutverki.
Fundarstjóri verður Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala
háskólasjúkrahúss.
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Gimli við Sæmundargötu , 101 Reykjavík.
Netfang stofnunarinnar: stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Vefsetur: www.stjornsyslustofnun.hi.is- heimasíða stofnunarinnar
www.stjornmalogstjornsysla.is - veftímarit
www.nyskopunarvefur.is- vefur um nýsköpun í opinberri þjónustu
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140924/02019536/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 48049 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140924/02019536/attachment-0001.gif
More information about the Vid-stund
mailing list