[Vid-stund] Stjórnmála- og stjórnsýslufræðingar: Minnt er á frest til 15. okóber til að skila ritrýndum greinum í 2. tölublað 10. árg. 2014: Stjórnmál og stjórnsýsla - A call for papers- Icelandic Review of Politics and Administration- IRPA

Gestur Páll Reynisson gpr1 at hi.is
Mon Sep 8 10:24:53 GMT 2014


 Til fræðimanna á sviði stjórnmála- og stjórnsýslufræða og tengdra 
fræðigreina. (ENGLISH TEXT BELOW)

Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla er gefið út tvisvar á ári í opnum 
aðgangi á vefsvæði þess www.irpa.is (eða www.stjornmalogstjornsysla.is) í 
júní og desember.  Ritrýndar fræðigreinar hvers árgangs eru gefnar út á 
prentuðu formi í febrúar árið eftir. Útgefandi er Stofnun stjórnsýslufræða 

og stjórnmála við Háskóla Íslands. 

Tilgangur tímaritsins er að gefa út og gera aðgengilegt þverfræðilegt efni 

um rannsóknir á sviði stjórnmála, stjórnsýslu og alþjóðamála með það fyrir 

augum að auka við þekkingu og efla faglega umræðu á þessum sviðum á 
Íslandi.  Ritrýndi hluti tímaritsins gegnir hlutverki fræðitímarits í 
stjórnmála- og stjórnsýslufræðum.  Í veftímaritinu er  stjórnmála- og 
stjórnsýslufræðingum, félagsfræðingum, hagfræðingum, heimspekingum, 
lögfræðingum, sagnfræðingum, viðskiptafræðingum og öðrum þeim er stunda 
rannsóknir og skrifa um þau viðfangsefni gefinn kostur á að gera 
rannsóknir 
sínar aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu 
greinarnar fjalla um sömu viðfangsefni en eru opinn vettvangur.  Í 
vefritinu eru eftirtaldir efnisflokkar:  ritrýndar fræðigreinar, greinar 
almenns eðlis og bókadómar. 

Veftímaritið er gefið út í íslenskri og enskri útgáfu (Icelandic Review of 

Politics and Administration- IRPA). 

Frestur til að skila ritrýndum greinum er til 15. október 2014 en frestur 
til 
að skila almennum greinum er til 1. nóvember 2014. 

Á vefsvæði timaritsins www.irpa.is  eða www.stjornmalogstjornsysla.is er 
að finna leiðbeiningar fyrir höfunda greina. 

Frá og með vorhefti 2014 skila höfundar greinum sínum inn á vefsvæði 
tímaritsins og þurfa að skrá sig þar inn og fylgja leiðbeiningum þar um. 
Höfundur getur fylgst með ferli greinar sinnar í kerfinu og fær 
tilkynningu frá því þegar ritrýnir hefur skilað umsögn sinni.

Þegar hafa verið gefin út átján tölublöð á vefnum.  Ritrýndar greinar 
hvers árgangs hafa verið prentaðar og eru þær bækur fáanlegar hjá 
Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum og  bókasöfnum.   Einnig er hægt að 
gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu af ritrýndum greinum sem birtast í 
veftímaritinu og kemur hún út einu sinni á ári. 

Möguleiki er á að panta eldri árganga tímaritsins á netfanginu gpr1 at hi.is

----------------------------------------------------------------------

To scholars in political science, public administration and related 
disiplines,

The webjournal The Icelandic Review of Politics and Administration- IRPA 
is a scientific journal devoted to the publication of original research in 

political science and related disciplines. Its main focus is on themes 
which are relevant to Icelandic politics and policy but it is open to a 
broader range of articles. All articles of sufficient quality making an 
original contribution to political science or one of its sub-fields will 
be considered and articles on various aspects of small state studies are 
especially welcomed. 

Journal articles are published in English or Icelandic. Articles in 
Icelandic are accompanied with abstracts and bibliographic information in 
English. Publication dates on the web are June 15th and December 15th each 
year. 
A printed edition is published in February the following year. There are 
three 
sections; peer reviewed articles, articles and speeches and book reviews. 

On the journals´ web www.irpa.is you will find guidelines for authors. 

The deadline for submitting an article for peer review is October 15th 
2014. 
The deadline for submitting articles and speeches is November 1st 2014. 

>From spring 2014 authors will submit their articles in the Open Journal 
System (OJS) of the journal. Authors are requested to follow instructions 
and register with the system see SUBMISSIONS on the journals´web. 
Registration and login is required to submit items online and to check the 
status 
of current submissions. 


Fyrir hönd ritnefndar, 

Með bestu kveðju, 
Gestur Páll Reynisson MPA, 
forstöðumaður/director 

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management 
and Politics. 
Háskóli Íslands/University of Iceland 
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík 
gpr1 at hi.is
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8941588
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/ 
 
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140908/5029333c/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list