[Vid-stund] Lokaútkall: Viðverustjórnun og heilsueflandi aðgerðir á vinnustað

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Mon Oct 20 09:57:05 GMT 2014


Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna 
ríkisstofnanna í samstarfi við Félag mannauðsstjóra ríkisins kynna:
Viðverustjórnun og heilsueflandi aðgerðir á vinnustað
Morgunverðarfundur á Grand hótel Reykjavík miðvikudaginn 22. október frá 
kl. 8.30-10.00
Þátttökugjald kr. 4500,- morgunverður innifalinn. Húsið opnar kl. 8.00.


Skráning á morgunverðarfundinn
Framsögumenn:
1.      Svava Jónsdóttir, ráðgjafi hjá ProActive-ráðgjöf og fræðslu
2.      Sigríður Hrefna Jónsdóttir, mannauðsstjóri lögreglunnar á 
höfuðborgarsvæðinu
3.      Vilhjálmur Kári Haraldsson, mannauðsstjóri Garðabæjar
4.      Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs 
Háskóla Íslands
Engum dylst að gríðarlegur kostnaður og röskun starfsemi fyrirtækja og 
stofnana er vegna veikinda og tengdra forfalla. Eitt meginviðfangsefni 
stjórnenda og mannauðsstjóra hefur verið að finna leiðir til að stemma 
stigu við þessu. Ýmsar heilsueflandi aðgerðir við mannauðsstjórnun verða 
sí vinsælli til þess að stemma stigu við forföllum en rannsóknir benda til 
þess að 50-60% tapaðra vinnudaga tengist vinnutengdri streitu og 
sálfélagslegum þáttum. 
Á fundinum munu framsögumenn deila með fundarmönnum reynslu sinni af 
heilsueflandi aðgerðum á sínum vinnustað auk þess sem ráðgjafar á þessu 
sviði munu kynna hvaða leiðir eru færar við viðverustjórnun á vinnustöðum.

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Gimli við Sæmundargötu , 101 Reykjavík.

Netfang stofnunarinnar: stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Vefsetur: www.stjornsyslustofnun.hi.is- heimasíða stofnunarinnar
www.stjornmalogstjornsysla.is - veftímarit
www.nyskopunarvefur.is- vefur um nýsköpun í opinberri þjónustu
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20141020/add97793/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 59189 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20141020/add97793/attachment-0001.gif 


More information about the Vid-stund mailing list