[Vid-stund] Fw: Ath! Námskeið í gerð árangursríkra umsókna, 6. nóvember 2014
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Mon Oct 13 15:44:24 GMT 2014
Hvað þarf til að styrkumsókn beri árangur?
Námskeið í gerð árangursríkra styrkumsókna á mannamáli!
Hátíðarsal Háskóla Íslands 6. nóvember 2014 kl. 9.30 ? 14.00
Leiðbeinandi: Robert Porter, PhD.
Námskeiðsgjald er 10.000. Veitingar og námskeiðsgögn eru innifalin í
verðinu.
Skráningar skulu berast fyrir mánudaginn 3. nóvember. Skráning fer fram á
heimasíðu Rannís: http://www.rannis.is/frettir/nr/2872
Rannís og Félag rannsóknastjóra á Íslandi standa fyrir námskeiði í gerð
árangursríkra styrkumsókna. Á námskeiðinu verður farið yfir
undirstöðuatriði í gerð árangursríkra umsókna en námskeiðið er sérstaklega
miðað að þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í umsóknargerð. Farið
verður yfir skilgreiningu verkefnis og hvernig styrkumsóknir eru ritaðar.
Samanburður verður gerður á hefðbundnum akademískum texta og texta í
styrkumsóknum. Skilgreindar verða algengar gildrur sem sem geta fellt
umsókn og þátttakendum gefin góð ráð um hvernig hægt er að forðast þær.
Sérstök áhersla verður lögð á að svara spurningunni hvernig eigi að skrifa
umsókn þannig að hún falli í kramið hjá sem meta umsóknir.
Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir:
§ Alvarlegustu mistök við gerð styrkumsókna og hvernig má varast þau
§ Tvö mikilvæg skref sem geta tvöfaldað möguleika á árangri
§ Hvernig maður kemur sér í mjúkinn hjá matsmönnum
§ Einfaldar leiðir til að skrifa betri styrkumsóknir
§ Myndir: að selja hugmyndir með myndrænni framsetningu
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Bandaríkjamaðurinn Robert Porter, PhD
Robert Porter er þekktur fyrirlesari og námskeiðshaldari og hefur haldið
námskeið um umsóknaskrif á alþjóðavettvangi í fjölda ára. Áður starfaði
hann sem forstöðumaður rannsóknaþróunardeildar University of Tennessee.
Robert Porter er handhafi Distinguished Faculty Award sem veitt eru af
Alþjóðasamtökum rannsóknastjóra. Hann er með rúmlega 30 ára reynslu sem
prófessor, ráðgjafi og rannsóknastjóri og hefur m.a. í gegnum störf sín
fengið rúmlega 8 milljónir dollara í styrki frá opinberum- og einkasjóðum.
Robert Porter PhD, er með háskólagráðu í munnlegum samskiptum eða speech
communication.
Kær kveðja,
Ingibjörg Lilja
Aðalheiður Jónsdóttir
Kynningarstjóri?Head of Communications
Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís ?The Icelandic Centre for Research -
RANNÍS
Laugavegi 13
IS-101 Reykjavík, Iceland
Tel: +354-515 5800 ?Mobile: +354-892 1916
adalheidur.jonsdottir at rannis.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20141013/f7493930/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 14346 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20141013/f7493930/attachment.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list