[Vid-stund] Afmælishátíð Íslensku kosningarannsóknarinnar 15. maí næstkomandi
Gestur Páll Reynisson
gpr1 at hi.is
Thu May 8 14:05:12 GMT 2014
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og Félag
stjórnmálafræðinga kynna
Íslenskir kjósendur í 30 ár
Afmælishátíð Íslensku kosningarannsóknarinnar
Afmælishátíðin verður haldin fimmtudaginn 15. maí í Öskju - Háskóla
Íslands, stofu 132, kl. 14:00-16:00 og verður boðið upp á léttar veitingar
eftir fyrirlestrana.
Alþingiskosningarnar árið 2013 mörkuðu 30 ára afmæli Íslensku
kosningarannsóknarinnar. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði,
hefur stýrt kosningarannsókninni frá upphafi og er hún ein elsta og
viðamesta langtímarannsókn innan félagsvísinda á Íslandi. Í tilefni þessa
áfanga er boðað til afmælishátíðar undir yfirskriftinni ?Íslenskir
kjósendur í 30 ár?. Heiðursgestur hátíðarinnar er Hermann Schmitt,
prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Manchester og Háskólann í
Mannheim, og einn helsti sérfræðingur í Evrópu um kjósendur og kosningar í
nútímalýðræðisríkjum.
Í tilefni afmælishátíðarinnar verða gögn Íslensku kosningarannsóknarinnar
jafnframt opnuð formlega í gegnum vefumsjónarkerfi Nesstar. Í gegnum það
kerfi er hægt að skoða niðurstöður úr Íslensku kosningarannsókninni án
þess að þurfa til þess sérhæfð tölfræðiforrit. Opnun gagnanna í Nesstar
mun því gera öllum sem á því hafa áhuga kleift að skoða og greina gögnin.
Dagskrá
14:00-14:30 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði og
forstöðumaður Íslensku kosningarannsóknarinnar. Er Ísland á krossgötum?
Þróun á kosningahegðunnar á síðustu áratugum.
14:30-14:45 Hulda Þórisdóttir, lektor við stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands.
Snýst allt um skatta?: Málefnaafstaða íslenskra kjósenda frá 1983-2013.
14:45-15:00 Eva H. Önnudóttir, doktorsnemi í stjórnmálafræði við
Háskólann í Mannheim, CDSS. Voru kosningarnar 2009 krítískar kosningar?:
Kreppur og breyttir kjósendur.
15:00-15:15 Viktor Orri Valgarðsson, verkefnastjóri hjá
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Sjálfstæðiskynslóðin? Kjörsókn á
Íslandi í gegnum ári.
15:15-16:00 Hermann Schmitt, prófessor við Háskólann í Manchester
og Háskólann í Mannheim. Kosningarannsóknir 21.aldarinnar.
Nánari umfjöllun um fyrirlesara og erindi þeirra má finna á heimasíðu
Stofnunar stjórnsýslufræða. www.stjornsyslustofnun.hi.is
Bogi Ágústsson, fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, stýrir umræðum og
fyrirspurnum að erindum loknum.
Nánari upplýsingar um afmælishátíðina veitir Eva H. Önnudóttir (891 6993 /
eho at hi.is).
Erindi og umræður fara fram á ensku.
Allir eru velkomnir.
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Gimli við Sæmundargötu , 101 Reykjavík.
Netfang stofnunarinnar: stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Vefsetur: www.stjornsyslustofnun.hi.is- heimasíða stofnunarinnar
www.stjornmalogstjornsysla.is - veftímarit
www.nyskopunarvefur.is- vefur um nýsköpun í opinberri þjónustu
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140508/3cde7353/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list