[Vid-stund] Háskólafundur Ímark er á fimmtudaginn

Elísa Jóhannsdóttir ej at hi.is
Mon Mar 10 16:49:12 GMT 2014


ÍMARK og viðskiptadeildir Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og 
Háskólans á Bifröst  halda í samstarfi Háskólafund ÍMARK 13. mars 
næstkomandi. Fyrsti Háskólafundurinn var haldinn í febrúar 2012 og vakti 
hann mikla lukku, því var ákveðið að endurtaka hann núna þriðja árið í 
röð. Tilgangur þessa fundar er að byggja brú á milli atvinnulífs og 
háskóla, milli fræða og praktík.

Á Háskólafundi ÍMARK verða flutt fimm stutt en fjölbreytt erindi af aðilum 
úr háskólunum annarsvegar og aðilum úr atvinnulífinu hinsvegar. Hvert 
erindi tekur 10 mínútur, svokölluð örerindi, þar sem farið er yfir 
áhugaverð efni er tengjast markaðsmálum. Hugmyndin var að hver háskóli 
leggi til eitt erindi á athyglisverðum háskólaverkefnum nemenda eða 
kennara og einnig voru tvö fróðleg erindi úr atvinnulífinu. Rauði 
þráðurinn er markaðsmál.

Dagskrá og nánari upplýsingar eru hér í viðburðadagatali. 


Bestu kveðjur, 
Elísa

Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140310/e97df19a/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 101590 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140310/e97df19a/attachment-0002.jpe 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140310/e97df19a/attachment-0003.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list