[Vid-stund] Lokaútkall: Áskoranir í ríkisrekstri- Morgunverðarfundur 11. mars á Grand Hótel Reykjavík

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Fri Mar 7 13:46:27 GMT 2014


Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og 
stjórnmála bjóða til morgunverðarfundar þriðjudaginn 11. mars á Grand 
Hótel Reykjavík, Gullteigi, kl. 8.00-10.00. Morgunverður frá kl. 8. 
Dagskrá hefst kl. 8.30.


 Áskoranir í ríkisrekstri
Hverjar eru meginlínur opinbers rekstrar eftir hrun? 

Þátttökugjald kr. 4.400, morgunverður innifalinn. 
Skráning á morgunverðarfundinn 

Mikill niðurskurður hefur átt sér stað hjá hinu opinbera á undanförnum 
árum. Samhliða niðurskurði eru áfram kröfur um óbreytt eða aukið 
þjónustustig opinberra stofnana. Þrír framsögumenn munu fjalla um þetta 
viðfangsefni. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og Guðlaugur 
Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, sem einnig sátu í 
hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar, ræða um leiðir til takast á við 
núverandi vanda í ríkisrekstri. Auk þeirra kemur Sigríður Björk 
Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum og flytur erindi um þær 
áskoranir sem forstöðumenn opinberra stofnana standa frammi fyrir. 




Framsögumenn:
1.        Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar. 
2.        Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar 
3.        Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á Suðurnesjum. 

Að erindum loknum verða hringborðsumræður með framsögumönnum ásamt Eyþóri 
Björnssyni, fiskistofustjóra, Borghildi Erlingsdóttur, forstjóra 
Einkaleyfastofunnar og Ársæli Guðmundssyni, formanni 
Skólameistarafélagsins.

Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og 
stjórnmála 

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Gimli við Sæmundargötu , 101 Reykjavík.

Netfang stofnunarinnar: stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Vefsetur: www.stjornsyslustofnun.hi.is- heimasíða stofnunarinnar
www.stjornmalogstjornsysla.is - veftímarit
www.nyskopunarvefur.is- vefur um nýsköpun í opinberri þjónustu
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140307/54af86f7/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 25796 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140307/54af86f7/attachment-0001.gif 


More information about the Vid-stund mailing list