[Vid-stund] Fjárlagafrumvarpið 2014 og staða ríkisfjármála - Samtal við fjármálaráðherra á morgunverðarfundi 7. okt. á Grand hótel Reykjavík

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Tue Sep 24 14:39:02 GMT 2013


Fjárlagafrumvarpið 2014 og staða ríkisfjármála 
Hvaða breytingar eru framundan í opinberum rekstri? 
Morgunverðarfundur með fjármála- og efnahagsráðherra mánudaginn 7. október 
kl. 8.30-9:45 
á Grand hótel Reykjavík. 
Morgunverður frá kl. 8:00 

á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Félags forstöðumanna 
ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ. 

Þátttökugjald kr. 4400,- morgunverður innifalinn. Skráning HÉR 





Fjárlagafrumvarp 2014 verður lagt fram við upphaf haustþings þann 1. 
október n.k. en þar birtast áherslur nýrrar ríkisstjórnar í ríkisfjármálum 
og opinberum rekstri.  Umræður síðustu vikna hafa gefið vísbendingar um 
áframhaldandi aðhald í rekstri ríkisins, nýja forgangsröðun, endurskoðun á 
verkefnum hins opinbera,  skipulags- og kerfisbreytingar þ.á.m. 
hugsanlegar sameiningar stofnana. Stjórnendur og starfsmenn opinberra 
stofnana velta fyrir sér áhrifum þessara áforma á starfsemi stofnana 
sinna. Á fundinum mun Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra 
ræða fjárlagafrumvarpið 2014, stöðu og horfur í ríkisfjármálum og áform 
ríkisstjórnarinnar um áherslubreytingar í  ríkisrekstri.  Magnús 
Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og formaður Félags 
forstöðumanna ríkisstofnana, Ómar H. Kristmundsson, prófessor við 
Stjórnmálafræðideild HÍ  og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður 
greiningardeildar Arion banka munu bregðast við ræðu fjármála- og 
efnahagsráðherra og leggja fyrir hann spurningar.  Síðan verða almennar 
fyrirspurnir og umræður.  Fundarstjóri er Ásdís Hlökk Theódórsdóttir, 
forstjóri Skipulagsstofnunar. 

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Gimli við Sæmundargötu , 101 Reykjavík.

Netfang stofnunarinnar: stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Vefsetur: www.stjornsyslustofnun.hi.is- heimasíða stofnunarinnar
www.stjornmalogstjornsysla.is - veftímarit
www.nyskopunarvefur.is- vefur um nýsköpun í opinberri þjónustu
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20130924/be3c9200/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 77627 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20130924/be3c9200/attachment-0001.gif 


More information about the Vid-stund mailing list