[Vid-stund] Til kennara í meistaranámi (VIÐ og HAG)
Hildur Bjarnadóttir
hildurb at hi.is
Tue Nov 26 11:40:42 GMT 2013
Sælir kæru kennarar í Meistaranámi í Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild.
Við hjá Maestro ætlum að fagna próflokum á jólahlaðborði á Turninum þann
20.desember, og langar okkur að bjóða ykkur að fagna með okkur.
Það þurfa allir að slappa aðeins af og gera sér glaðan dag eftir erfiða
prófa- og verkefnatörn, og ekki síst kennararnir!
Hlaðborðið mun kosta litlar 7500 kr en hlaðborðið er vanalega á 8990 kr.
Hér er linkur á matseðilinn: http://www.turninn.is/?pageid=115
Það verða tilboð á barnum fyrir okkur:
Bjór tveir fyrir einn
Léttvínsflaska 3990 kr
Einfaldur 900 kr
Tvöfaldur 1400 kr
Mæting er kl 19:00. Það mun hljóma Jóla-djazz um salinn kl 19:30 og aftur
kl 22:00.
Stjórn Maestro mun taka á móti ykkur í jólastuði og sjá til þess að öllum
verði skemmt allt kvöldið :)
Skráning fer fram á facebook hér (þeir sem ekki eru með fb geta sent okkur
póst á maestro at hi.is)
Ef þið hafið áhuga á að gleðjast með okkur þann 20. desember, biðjum við
ykkur að greiða fyrir 2. desember, til þess að við getum staðfest fjölda.
Bankareikningur: 0137-26-6408
Kennitala: 640801-2550
Senda kvittun: maestro at hi.is
Vonumst til að sjá sem flesta í Jólastuði :D
Maestro
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20131126/bc16442b/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list