[Vid-stund] Háskóladagur ÍMARK - 23. janúar kl. 9-10:30 í Hátíðasal Háskóla Íslands
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue Jan 22 14:39:20 GMT 2013
Háskóladagur ÍMARK
Hvenær hefst þessi viðburður: 23. janúar 2013 - 9:00 to 10:30
Staðsetning viðburðar: Aðalbygging
Nánari staðsetning: Hátíðasalur
ÍMARK, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og viðskiptadeildir Háskólans í
Reykjavík og Háskólans á Bifröst standa saman að Háskólafundi ÍMARK í
janúar.
Fyrsti Háskólafundurinn var haldinn í febrúar 2012 og vakti hann mikla
lukku, því var ákveðið að endurtaka hann í ár. Tilgangur þessa fundar er
að byggja brú á milli atvinnulífs og háskóla, milli fræða og praktík.
Á Háskólafundi ÍMARK verða flutt fimm stutt en fjölbreytt erindi af aðilum
úr háskólunum annars vegar og aðilum úr atvinnulífinu hins vegar. Hvert
erindi tekur 10 mínútur, svokölluð örerindi, þar sem farið er yfir
áhugaverð efni er tengjast markaðsmálum.
Erindin eru eftirfarandi:
Háskólinn á Bifröst
Nemandi: Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
Gráða: B.Sc. í Viðskiptafræði
Verkefni: Snjallsímavæðing á Íslandi.
Mjólkursamsalan
Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri
Erindi: Markaðmálin í praktík. Guðný er markaðsstjóri MS en það var
tilnefnt til Markaðsverðlauna 2012. Guðný mun fjalla um uppbyggingu
vörumerkja, en það var umfjöllunarefni í meistararitgerð hennar sem hefur
einnig nýst henni vel í starfi hjá MS þar sem áhersla er á uppbyggingu
vörumerkja.
Háskóli Íslands
Nemandi: Helgi Héðinsson
Gráða: MSc í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum
Verkefni: Auðlindir, færni og árangur: Samband óefnislegra auðlinda,
markaðslegrar færni og árangurs (meistararitgerð).
Pipar/TBWA auglýsingastofa
Vigdís Jóhannsdóttir, ráðgjafi
Erindi: Markaðsfræði og auglýsingar. Vigdís stundaði nám í viðskiptafræði
við Háskólann í Reykjavík og starfar nú í auglýsingageiranum. Vigdís mun
fjalla um þróun markaðsfræðinnar í praktík og hlutverk auglýsinga í
markaðsmálum.
Háskólinn í Reykjavík
Nemandi: Vishnu M. Ramachandran Girija
Gráða: PhD í Markaðsfræði
Verkefni: Tilraunir í stafrænni markaðssetningu. Erindi fer fram á ensku.
Allir velkomnir
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20130122/df365008/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 33995 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20130122/df365008/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list