[Vid-stund] Minnt er á frest til 15. apríl til að skila ritrýndum greinum í 1. tölublað, 2013: Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit, sem kemur út í júní
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
stjornsyslaogstjornmal at hi.is
Mon Feb 4 17:54:01 GMT 2013
Til fræðimanna um stjórnmál, stjórnsýslu og tengdar greinar.
Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla er gefið út tvisvar á ári á
heimasíðu þess www.stjornmalogstjornsysla.is Ritrýndar fræðigreinar
hvers árgangs eru gefnar út á prentuðu formi í febrúar árið eftir.
Tilgangur tímaritsins er að gefa út og gera aðgengilegt þverfræðilegt efni
um rannsóknir á sviði stjórnmála, stjórnsýslu og alþjóðamála með það fyrir
augum að auka við þekkingu og efla faglega umræðu á þessum sviðum á
Íslandi. Ritrýndi hluti tímaritsins gegnir hlutverki fræðitímarits í
stjórnmála- og stjórnsýslufræðum. Í veftímaritinu er stjórnmála- og
stjórnsýslufræðingum, félagsfræðingum, hagfræðingum, heimspekingum,
lögfræðingum, sagnfræðingum, viðskiptafræðingum og öðrum þeim er stunda
rannsóknir og skrifa um þau viðfangsefni gefinn kostur á að gera
rannsóknir sínar aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu
greinarnar fjalla um sömu viðfangsefni en eru opinn vettvangur. Í
vefritinu eru eftirtaldir efnisflokkar: ritrýndar fræðigreinar, greinar
almenns eðlis og bókadómar, auk tengla á samtök stjórnmála- og
stjórnsýslufræðinga hérlendis og erlendis og fleiri innlendra og erlendra
upplýsingaveita á sviði stjórnsýslu og stjórnmála.
Veftímarritið er jafnframt gefið út í enskri útgáfu (Icelandic Review of
Politics and Administration), sjá flipann English í hægra horni vefsins.
Á vefsvæði timaritsins www.stjornmalogstjornsysla.is er að finna
leiðbeiningar fyrir höfunda greina.
Þegar hafa verið gefin út fimmtán tölublöð á vefnum og ritrýndar greinar
hvers árgangs verið prentaðar og eru þær bækur fáanlegar hjá
Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum og bókasöfnum, Einnig er hægt að
gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu af ritrýndum greinum sem birtast í
veftímaritinu og kemur hún út einu sinni á ári. 8. árg. 2012 kemur út
síðar í þessum mánuði og kostar áskrift 4200,- Gerast áskrifandi.
Möguleiki er á að panta eldri árganga tímaritsins á netfanginu
astam at hi.is.
Fyrir hönd ritnefndar,
Með bestu kveðju,
Ásta Möller MPA,
forstöðumaður/director
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management
and Politics.
Háskóli Íslands/University of Iceland
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
astam at hi.is
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
_______________________________________________
Þessi póstur var sendur á póstlistann Hi-starf at listar.hi.is.
Efni hans og innihald eru á ábyrgð sendanda og endurspegla
ekki endilega stefnu Háskóla Íslands í einstökum málum.
Sjá http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf og
news:hi.listar.hi-starf.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20130204/023c2ce5/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list