[Vid-stund] Á MORGUN: Kynjakvóti lögleiddur í stjórnum fyrirtækja, 27.mars kl. 12-13, HT-101
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Mon Mar 26 14:47:00 GMT 2012
Kynjakvóti lögleiddur í stjórnum fyrirtækja.
Þriðjudaginn 27. mars heldur Jón Snorri Snorrason erindi á málstofu
Viðskiptafræðideildar undir yfirskriftinni Kynjakvóti lögleiddur í
stjórnum fyrirtækja.
Háskólatorg, HT-101, kl 12-13
Noregur var fyrst landa til að lögleiða kynjaskiptingu í stjórnum
fyrirtækja og miða við að hlutföllin séu 40/60. Farið verður yfir
forsendur og reynslu Norðmanna. Lagasetningin hér á landi hefur fyrirmynd
frá Noregi. Hvað felst í lögleiðingunni og hverjar eru forsendur hennar?
Hvaða fyrirtæki falla hér undir? Farið verður yfir stöðuna í dag og hver
hlutur kvenna er í stjórnum fyrirtækja hér á landi. Það liggur fyrir að
hlutur kvenna þarf að aukast verulega fram að gildistöku laganna 1.
september 2013. Hvaða leiðir eru mögulegar í þessum efnum og hver verður
framkvæmdin?
Jón Snorri Snorrason er lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120326/af437892/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 109600 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120326/af437892/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list