[Vid-stund] Á MORGUN: Árangursrík innleiðing viðskiptagreindar - þriðjudaginn 13. mars kl. 12-13, HT-101

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Mon Mar 12 16:35:18 GMT 2012


Árangursrík innleiðing viðskiptagreindar - þriðjudaginn 13. mars kl. 
12-13, HT-101 

Þriðjudaginn 13. mars heldur Kristín Guðmundsdóttir erindi á málstofu 
Viðskiptafræðideildar undir yfirskriftinni Árangursrík innleiðing 
viðskiptagreindar. 

Erindið er byggt á helstu niðurstöðum meistararitgerðar Kristínar. Í 
umfjöllun sinni mun hún fjalla um viðskiptagreind eða Business 
Intelligence (BI) er eins konar regnlífarhugtak sem nær yfir hugbúnað og 
uppbyggingu upplýsingakerfa sem gerir mögulegt að greina tiltæk gögn. 
Markmið með ítarlegri greiningu gagna er að veita stuðning við 
ákvarðanatöku og frammistöðumat með hnitmiðuðum upplýsingumm. Margir telja 
að þau fyrirtæki sem hafa náð frábærum árangri í rekstri búi líka yfir 
frábærri greiningarhæfni. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að skilgreina 
hvernig hagnýting viðskiptagreindar getur hjálpað fyrirtækjum að ná 
framúrskarandi árangri. 

Kristín Guðmundsdóttir brautskráðist með M.Sc. í viðskiptafræði frá 
Háskóla Íslands í febrúar síðastliðnum og er skrifstofustjóri 
Tölvunarfræðideildar HR.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120312/9eba374f/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 94981 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120312/9eba374f/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list