[Vid-stund] Á MORGUN: Um siðrof í 8. bindi skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis - þriðjudaginn 31. janúar kl. 12-13 í HT-101
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Mon Jan 30 11:46:08 GMT 2012
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar:
Um siðrof í 8. bindi skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis
Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 31. jan. kl. 12-13
Siðrof er hugtak sem sett var fram seint á 19. öld, meðal annars af Emil
Durkheim.
Atvinnuhættir, fjölskylduhættir, umgengnishættir og lífsskilyrði almennt
taka miklum breytingum þegar þjóðfélög þróast í átt til iðnvæðingar og
þéttbýlis.
Durkheim lagði þessa hugtakatvennu til grundvallar greiningu sinni á
þessari þróun og greip þá einnig til hugtaksins anomie sem á íslensku
hefur verið nefnt siðrof. Þetta hugtak vísar til þjóðfélagsástands, sem
myndast þegar breytingar eru svo örar og þjóðfélagsástandið verður í
kjölfarið svo framandi að umgengnishættir og gildi, sem almenningur hefur
alist upp við, glata samhenginu við hinn félagslega veruleika.
Siðrofi fylgir óvissa, upplausn, vantraust milli einstaklinga og hópa og
getur leitt til mikillar vár í þjóðfélaginu. Margt af því sem hér er lýst
kemur fram í svokallaðri útrás íslenskra fyrirtækja og er fjallað um það í
8. bindi skýrslu RNA.
Vilhjálmur Bjarnason er lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Allir velkomnir
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120130/f83950b4/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 125435 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120130/f83950b4/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list