[Vid-stund] Málstofa í Hagfræðideild: Húsnæðismarkaður í DSGE líkani, Odda 3. hæð - föstudaginn 13. jan. kl. 10

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Wed Jan 11 11:23:08 GMT 2012


Málstofa á vegum Hagfræðideildar:
Húsnæðismarkaður í DSGE líkani
Oddi, 3. hæð, föstudaginn 13. jan kl. 10-11

Aðalheiður fjallar í erindi sínu um svokallað Dynamic Stochastic General 
Equilibrium (DSGE) líkan. Líkanið er byggt á hagnaðarhámörkun fyrirtækja 
og nytjahámörkun neytenda, sem fá nyt af neyslu almenns gæðis, húsnæðis og 
frítíma. Líkanið er byggt á tveimur týpum af neytendum sem hafa mismunandi 
afvöxtunarstuðla. Sú forsenda er nægileg til að tryggja að lánamarkaður 
verði til, þar sem þeir óþolinmóðu fá lánaða fjármuni frá hinum þolinmóðu. 
Lán eru þó aðeins veitt gegn veði í húsnæði, en sú forsenda býr til sterk 
tengsl milli eigna- og lánamarkaða. Að hætti fleiri svipaðra Ný-Keynsískra 
líkana er gert ráð fyrir að laun og verð séu tregbreytanleg og ákvörðuð 
samkvæmt Calvo líkaninu. Einnig er gengið út frá því að raunbreytur séu 
tregbreytanlegar. Þessar forsendur eru nægilegar til að fá breytur 
líkansins til að leyta aftur í jafnvægi með svipuðum hætti og við sjáum 
raunverulegar hagstærðir hegða sér. Viðbrögð breytanna við hækkun 
lánsvaxta eru könnuð við tvær mismunandi aðstæður á lánamarkaðnum.

Aðalheiður Guðlaugsdóttir stundar doktorsnám við Aarhus Universitet. 
Rannsóknir hennar beinast að því að færa eignamarkaði inn í þjóðhagslíkön, 
nánar tiltekið DSGE líkön. Hún er einnig tengd við rannsóknarsetrið 
CREATES (Center of Research in Econometric Analysis of Time Series).
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120111/661f71a9/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 137342 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120111/661f71a9/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list