[Vid-stund] Áhrif EES-aðildar á utanríkisverslun Íslands - föstudaginn 10. feb kl. 11 í Odda, fundarherbergi 3. hæð

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Tue Feb 7 16:09:12 GMT 2012


Málstofa á vegum Hagfræðideildar:
Áhrif EES-aðildar á utanríkisverslun Íslands
Oddi, 3. hæð, föstudaginn 10. feb. kl. 11-12

Aðildin að Evrópska efnahagssvæðinu 1994 fól í sér nána samlögun Íslands 
að efnahagslífi Evrópulanda og gagnkvæman og óheftan aðgang einstaklinga 
og fyrirtækja að innri markaði Evrópusambandsins. Sú staðreynd að Ísland 
var orðið hluti af sameiginlegum markaði ESB hlaut að hafa víðtæk áhrif á 
íslenskt samfélag og efnahagslíf enda ESB mikilvægasti viðskiptaaðili 
Íslands. Mikið hefur verið rætt og ritað um efnahagsleg áhrif 
EES-samningsins t.d. á fjármálamarkað, efnahagslegan stöðugleika og 
frjálsræði í viðskiptum, en ekki hefur enn verið gerð rækileg úttekt á 
áhrifum hans á utanríkisverslun.

Í erindinu er leitast við að greina þau áhrif sem EES-samningurinn hafði á 
utanríkisverslun Íslands. Sjónum er einkum beint að breytingum á 
viðskiptaumhverfinu og viðbrögðum fyrirtækja við þeim, greiðari 
markaðsaðgangi íslenskra fyrirtækja í Evrópu og breytingum á 
vöruviðskiptum í kjölfar EES-aðildar.

Guðmundur Jónsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann 
vinnur nú að ritun sögu íslenskrar utanríkisverslunar á 20. öld.

Allir velkomnir.


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120207/619074b5/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 137731 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120207/619074b5/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list