[Vid-stund] Kynning fyrir nýja kennara og stundakennara
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Mon Dec 17 14:00:12 GMT 2012
Kynning fyrir nýja kennara
Stund: fös. 4. janúar 2013, kl. 9:00 - 14:30
Staður: Árnagarður, 310.
Skráning er á heimasíðu Kennslumiðstöðvar: www.kemst.hi.is
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands heldur kynningardag fyrir nýja kennara við
skólann fös. 4. janúar 2013 kl. 9:00-14:30. Leitað verður svara við
spurningum eins og:
· Hvernig er að vera nýr kennari við Háskóla Íslands?
· Hvert er hlutverk háskólakennara?
· Hvernig virkar Ugla?
· Hvernig tek ég upp á eMission?
Dagskrá:
9.00 ? 12:30 Nám og kennsla á háskólastigi og kynning á Kennslumiðstöð
Háskóla Íslands.
Guðrún Geirsdóttir, dósent á MVS og deildarstjóri Kennslumiðstöðvar og
Elva Björg Einarsdóttir, verkefnastjóri á Kennslumiðstöð.
12.30 ? 13:00 Léttur hádegisverður.
13:00 ? 14:00 Kennsluvefur Uglunnar. Kristbjörg Olsen, verkefnastjóri á
Kennslumiðstöð, kynnir helstu verkfæri kennsluvefs Uglu og hvernig
kennarar geta nýtt sér hann í kennslu.
14:00 ? 14:30 Upptökur í kennslu. Rúnar Sigurðsson, verkfnastjóri á
Kennslumiðstöð, kynnir upptökur í kennslu.
Hæfniviðmið
Að kynningardegi loknum ættu þátttakendur að:
· Gera sér grein fyrir hlutverki háskólakennara.
· Geta nýtt Uglu í kennslu.
· Geta tekið upp á eMission.
Stefna Háskóla Íslands
Í stefnu Háskóla Íslands 2011-2016 er lögð rík áhersla á gæði kennslu
t.a.m. með fjölbreyttum kennsluaðferðum og námsmati. Einnig er það
??kappsmál [háskólans] að stuðla að velferð, vellíðan og heilbrigði
starfsfólks og nemenda, m.a. með góðu vinnuumhverfi, fjölbreyttri
starfsþróun og hvatningu til árangurs og gæða í námi og starfi" (bls. 19).
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir kennara HÍ sem nýlega hafa fengið fastráðningu sem og
stundakennara í fullu starfi við háskólakennslu innan HÍ.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20121217/5b504835/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list