[Vid-stund] MÁLSTOFA FELLUR NIÐUR - Dregur bann við áfengisauglýsingum úr neyslu og misnotkun áfengis?
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Mon Apr 23 11:05:50 GMT 2012
MÁLSTOFA FELLUR NIÐUR - Dregur bann við áfengisauglýsingum úr neyslu og
misnotkun áfengis?
Dregur bann við áfengisauglýsingum úr neyslu og misnotkun áfengis? -
Þriðjudaginn 24. apríl kl. 12-13 á Háskólatorgi HT-101
Í fyrstu grein laga um áfengi nr. 75 frá 1998 segir, ?Tilgangur laga
þessara er að vinna gegn misnotkun áfengis?. Einn liður í því, eins og
fram kemur í 20. grein sömu laga, er að banna hvers konar auglýsingar á
áfengi og einstökum áfengistegundum. En hver eru tengslin, ef einhver, á
milli áfengisauglýsinga, neyslu og misnotkunar áfengis? Á málstofunni mun
Friðrik fjalla um rökin með og á móti banni við áfengisauglýsingum og
leitast við að svara spurningunni Dregur bann við áfengisauglýsingum úr
neyslu og misnotkun áfengis?
Friðrik Eysteinsson er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120423/356199ab/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 125143 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120423/356199ab/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list