[Vid-stund] Á MORGUN: Ávöxtun og ávöxtunarviðmið íslenskra lífeyrissjóða. Gylfi Magnússon á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 3. apríl kl. 12-13

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Mon Apr 2 14:35:42 GMT 2012


Þriðjudaginn 3. apríl heldur Gylfi Magnússon erindi á málstofu 
Viðskiptafræðideildar undir yfirskriftinni Ávöxtun og ávöxtunarviðmið 
íslenskra lífeyrissjóða. 
Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 3. apríl kl. 12-13 

Á málstofunni verður fjallað um ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða frá 
upphafi til vorra daga. Ávöxtun sjóðanna hefur verið mjög sveiflukennd, 
afleit allan áttunda áratuginn en síðan að mestu framar vonum frá upphafi 
níunda áratugarins, þrátt fyrir þung áföll í fjármálakrísunni. Í 
fyrirlestrinum verður þessi saga skoðuð og einnig horft til framtíðar, 
m.a. með hliðsjón af ávöxtunarviðmiði sjóðanna. 

Gylfi Magnússon er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120402/51fc4d69/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 115278 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120402/51fc4d69/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list