[Vid-stund] Hvernig á að búa til sterk vörumerki? Friðrik Eysteinsson á málstofu í Viðskiptafræðideild á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 27. sept kl. 12-13

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Thu Sep 22 13:52:52 GMT 2011


Málstofa í Viðskiptafræðideild: Hvernig á að búa til sterk vörumerki?

Fyrsta skrefið í að byggja upp sterk vörumerki (brands) er að gera sér 
grein fyrir því að þau eru meira en vöruheiti (brand names). Þau eru eign 
sem þarf að fjárfesta í. Næsta skref er að átta sig á því í hverju þessi 
eign felst og hvernig hægt er að auka verðmæti hennar. Liður í því getur 
verið að framkvæma svokallaða vörumerkjarýni (brand audit). Þriðja og 
síðasta skrefið er síðan að fylgjast með því hvort aðgerðir fyrirtækisins 
eru að auka verðmæti þessarar eignar.

Á málstofunni mun Friðrik varpa ljósi á ofangreind atriði auk þessa að 
reyna að svara spurningunni hvort aðferðafræði vörumerkjastjórnunar, sem 
mælt er með í fræðunum, skili sér í betri árangri fyrirtækja og hvort hún 
nýtist jafnt litlum/meðalstórum og stórum fyrirtækjum.
 
Friðrik Eysteinsson er aðjúnkt í markaðsfræði við Viðskiptafræðideild 
Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá markadsmenn.is

Staður og stund:
Háskólatorg, HT-101 
kl. 12-13 þriðjudaginn 27. september. 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110922/e8be6b98/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 146421 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110922/e8be6b98/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list