[Vid-stund] Í DAG: "Fjórar leiðir til að eyða peningum" Einar Guðbjartsson á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 20. sept kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue Sep 20 09:45:51 GMT 2011
Málstofa í Viðskiptafræðideild: Fjórar leiðir til að eyða peningum
Allt fjármagn hefur uppruna og ráðstöfun. Uppruni fjármagns er mismunandi,
það getur t.d. verið í formi launa, vaxtatekna, skatta, útsvars,
hlutafjár, sparnaðar, allt eftir því hvaða stofnun á í hlut. Það sem er
sameiginlegt með fjármagninu er að meirihluta af eyðslu þess er ekki í
höndum þess sem aflar. Það er oftast þriðji aðili sem eyðir fjármagninu,
þ.e. tekur ákvörðun um ráðstöfun. Sá aðili sem aflar fjármagnsins hefur
ekki alltaf mikið um það að segja, ef áhrif á, í hvað fjármagninu er eytt.
Fjármagni er hægt að eyða fjóra mismunandi vegu, séð útfrá uppruna þess,
skv. Milton Friedman. Í fyrirlestrinum er skoðað út frá fræðilegu
sjónarhorni (Adam Smith, Ronald H. Coase) þessar fjórar leiðir sem
mögulegar eru hvað varðar eyðslu/notkun á fjármagni og hvernig hver og ein
af þessum leiðum hefur eða hefur ekki þá innbyggðu aðhaldsþætti sem
æskilegir/nauðsynlegir eru.
Einar Guðbjartsson er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Staður og stund
Háskólatorg, HT-101
Þriðjudaginn 20. sept. kl 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110920/89407279/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 159487 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110920/89407279/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list