[Vid-stund] Robert Aliber í Hátíðasal: Hverjar eru orsakir titrings á eigna- og gjaldeyrismörkuðum? Fimmtudaginn 15. sept kl. 12-14
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue Sep 13 15:56:51 GMT 2011
Málstofa á vegum Hagfræðideildar: Robert Aliber: Hverjar eru orsakir
titrings á eigna- og gjaldeyrismörkuðum?
Í fyrirlestri sínum mun Robert Aliber fjalla um óstöðugleika á mörkuðum í
Evrópu og Bandaríkjunum í sögulegu samhengi. Hann mun velta fyrir sér
þeirri spurningu að hversu miklu leyti sveiflur í gengi gjaldmiðla og
sveiflur hlutabréfaverðs og fasteignaverðs megi rekja til alþjóðlegra
þátta, annars vegar, og starfsemi innlendra fjárfestinga- og
viðskiptabanka hins vegar.
Meðal áhugaverðra spurninga sem hann mun leitast við að svara er hvort
bankahrunið hér á landi hafi fremur átt rætur að rekja til ástands
alþjóðlegra fjármálamarkaðar eða eftirlitsleysis og áhættusækni innlendra
aðila.
Robert Z. Aliber er fyrrverandi prófessor við Chicago háskóla
Staður og stund:
Hátíðasalur, Aðalbyggingu
fimmtudaginn 15. september kl. 12-14
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110913/afdd54dc/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 142393 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110913/afdd54dc/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list