[Vid-stund] Málstofa í Hagfræðideild: Eigið fé sem takmarkandi þáttur í vexti og stærð bankakerfis. Eignarhaldsfélög og markaðsmisnotkun í aðdraganda hruns fjármálakerfis.
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Wed Nov 23 14:16:55 GMT 2011
Málstofa á vegum Hagfræðideildar:
Eigið fé sem takmarkandi þáttur í vexti og stærð bankakerfis.
Eignarhaldsfélög og markaðsmisnotkun í aðdraganda hruns fjármálakerfis.
Oddi, 3. hæð, föstudaginn 25. nóv. kl. 11-12
Ein af grundvallarstærðum við mat á styrkleika fjármálafyrirtækja er eigið
fé þeirra. Eigið fé er vegið saman við útlánaáhættur og ýmsa aðra
áhættuþætti í rekstri fjármálafyrirtækis. Sérstakar reglur gilda um
eignarhluti í öðrum fjármálafyrirtækjum og um víkjandi lán til annarra
fjármálafyrirtækja. Eigið fé er hinn takmarkandi þáttur í vexti
fjármálafyrirtækja, en því hefur verið lítill gaumur gefinn vegna
ofurtrúar á bindiskyldu.
Á málstofunni verður fjallað um það hvernig íslensk fjármálafyrirtæki
byggðu upp falskt eigið fé með útlánum til eignarhaldsfélaga. Í erindinu
verða fjallað um sjónarmið sem koma fram í Skýrslu Rannsóknarnefndar
Alþingis, 2. bindi, þ.e. 8. kafla skýrslunnar.
Vilhjálmur Bjarnason, cand oceon & MBA, er lektor í viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands. Kennsluefni hans er á sviði fjármála og fjármálamarkaða.
Að auki hefur Vilhjálmur margháttaða reynslu í störfum á fjármálamarkaði
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111123/1d959a8a/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 183862 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111123/1d959a8a/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list